top of page

Æfingarútínan mín

  • rosasoffiaharalds
  • Mar 7, 2017
  • 2 min read

Uppá síðkastið hef ég verið mjög dugleg í mataræðinu og haldið vel utan um það í Myfitnesspal, og þvílíkur munur sem ég finn á mér. Mig langaði til að bæta við fastri æfingarútínu, því ég hef í rauninni bara verið að æfa einhvernveginn í langan tíma núna og það hefur bitnað svolítið á lyftingunum hjá mér. Af því að þegar ég er ekki með skothelt æfingaplan, þá á ég það til að „gera bara eitthvað“ þegar ég mæti í ræktina, og það er yfirleitt ekki vænlegt til árangurs. Ég er núna með hlaupaprógram sem ég er að taka 3x í viku og á móti því skráði ég mig í Alpha girls æfingakerfið og ætla að taka það 4x í viku með hlaupunum


Svona lítur þá æfingarútínan mín út núna:

Mánudagur: Alpha girls lower body

Þriðjudagur: Hlaupaæfing + Alpha girls core

Miðvikudagur: Alpha girls upper body

Fimmtudagur: Hlaupaæfing + Alpha girls core

Föstudagur: Alpha girls lower body + Alpha girls core

Laugardagur: Hlaupaæfing + Alpha girls upper body

Mér finnst svo gott að vera komin með þetta svona niðurnelgt og að vera loksins með nákvæm prógröm til að fara eftir. Hér næst ætla ég svo að útskýra aðeins betur fyrir ykkur hvað þessi prógröm snúast um.


Hlaupaprógrammið sem ég er að fara eftir er frá Fjarþjálfun Siguróns Ernis og miðar við 3-4 hlaupaæfingar á viku. Þetta eru sprettaæfingar 3x í viku og svo á ég að taka eitt samfleytt hlaup a.m.k. aðra hverja viku. Með þessum hætti á maður að geta bætt tímann sinn í hlaupum, en mitt markmið er að ná að hlaupa 10 km í Reykjavíkurmaraþoninu í sumar undir 60 mín (síðasta sumar var ég 67 mínútur). Hérna getið þið kíkt á síðuna hans Sigurjóns og pantað ykkur hlaupaprógram.



Alpha girls æfingakerfið er online þjálfun og ég valdi mér Basic þjálfun eða Styrkur eins og það heitir á síðunni þeirra. Áður var einungis boðið uppá þetta æfingakerfi og ég hef prófað það áður í nokkra mánðuði og líkaði mjög vel, þannig vissi ég vel hvað ég var að fara útí. Núna bjóða þau uppá vöðvastækkunar- og fitutaps æfingakerfi að auki. Hér er hægt að lesa nákvæmlega um hvað Alpha girls snýst og hvað er í boði.


Hér er ég á opinni Alpha girls æfingu í fyrra að æfa tækni í Sumo deadlift


xx

Rósa Soffía

 
 
 

Comments


Bloggfærslur
Nýlegar færslur
Leitarorð: 
Follow Us
  • Facebook Classic
  • Twitter Classic
  • Google Classic

© 2023 by PERSONAL TRAINER. Proudly created with Wix.com

bottom of page