top of page

Próteinpönnsur/vöfflur

  • rosasoffiaharalds
  • Jan 10, 2018
  • 1 min read

Ég sagði ykkur frá því hérna um daginn að ég ætti oft erfitt með að finna mér morgunmat. Málið er að ég nenni bara alls ekki að útbúa mér eitthvað flókið (á svo sem við um allar máltíðir dagsins hjá mér), ég vil bara eyða sem allra mögulega minnstum tíma í eldhúsinu. Ég ákvað því að kaupa mér prótein pönnukökumix á Fitnessvefnum. Ég hef keypt þessa vöru hjá þeim áður og vissi því alveg að þetta væri vara sem ég myndi nota, og ekki skemmir fyrir að Elín borðar þetta meira að segja líka. Ég pantaði mér fleiri vörur hjá þeim og fékk að auki smá glaðning með, sem ég er mjög þakklát fyrir og er gífurlega spennt að prófa það allt saman á næstu dögum.

Ég var svo spennt að fá mér pönnukökurnar að ég var varla komin inn fyrir dyrnar heima þegar ég byrjaði að útbúa mér einn skammt. Úr einum skammti (sem er ein skeið af mixinu og 1 dl mjólk) verða til 2 pönnukökur, eða í mínu tilviki 2 vöfflur. Ég hafði þetta svo bara súper einfalt og setti agave sýróp ofan á, en auðvitað getur maður toppað þetta með hverju sem hugurinn girnist. Það er hægt að kaupa mixið með nokkrum bragðtegundum og ég valdi með hlynsýróp bragði. HÉR getið þið skoðað og pantað pönnukökumixið. Verðið á þessu er náttúrulega bara eitthvað grín, en dunkurinn kostar ekki nema 2990 kr.

Sjáið bara hvað þetta er girnilegt! Mæli svo klárlega með :)

xx

Rósa Soffía


 
 
 

Comentarios


Bloggfærslur
Nýlegar færslur
Leitarorð: 
Follow Us
  • Facebook Classic
  • Twitter Classic
  • Google Classic

© 2023 by PERSONAL TRAINER. Proudly created with Wix.com

bottom of page