top of page

Barcelona

  • rosasoffiaharalds
  • Jan 12, 2018
  • 2 min read

Við Elín heimsóttum Barcelona í september í fyrra. Við áttum miða á Lady Gaga tónleika sem við höfðum keypt í mars, en því miður var tónkeikunum frestað (þeir verða núna eftir 5 daga) svo ekkert varð úr þeim draumi, en við höfðum engu að síður þegar fjárfest í flugmiðum og gistingu svo við ákváðum að sjálfsögðu að skella okkur. Við leigðum okkur herbergi í gegnum airbnb og tókum þar staðsetningu og verð algjörlega framyfir þægindin. Ef maður er að ferðast "on a budget" þá get ég ekki mælt nógu mikið með airbnb, við mægður höfum notað það mjög mikið og oftar en ekki kemur það manni skemmtilega á óvart. Í þetta skiptið hinsvegar fengum við nákvæmlega það sem við keyptum. Lítið herbergi inní gamalli íbúð þar sem var ekkert nema rúm, náttborð og skápur. En herbergið var hreint og staðsetningin frábær svo við gerðum gott úr því, enda bara í helgarferð.

Barcelona er æðisleg borg sem mér finnst að allir ættu að heimsækja! Ég myndi segja að eini ókosturinn væri fáránlega mikill fjöldi túrista. Allt annað var yndislegt! Við skoðuðum alla helstu túristastaðina; Park Guell, Magic Fountain, Sagrada Familia, Casa Mila, Casa Batlló, Placa de Catalonya og Barcelona Cathedral svo eitthvað sé nefnt. Við eyddum einnig að sjálfsögðu miklum tíma á Römblunni, bæði við að versla og borða. Þar eru óendanlega margar búðir og margar hverjar svo flottar í sjúúúklega flottum húsum, þar var t.d. H&M búð sem var eiginlega bara eins og kastali. Við leigðum okkur reiðhjól síðasta daginn og hjóluðum um Gothic quarterinn og fleiri staði. Það er í raun alveg ótrúlegt hvað er mikið hægt að gera þarna! Ég tók svona u.þ.b. 10.000 myndir en ég ætla bara að deila örfáum þeirra hérna með ykkur.

Herbergið okkar fallega :)

Park Guell

Ramblan

Smábátahöfnin - þar er líka verslunarmiðstöð og sædýragarður/safn

Casa Mila

Verslunarmiðstöð byggð inni gömlum nautabana-hring. Hún er lokuð á sunnudögum, við komumst að því...

Magic Fountain. Sýningin er á kvöldin, að mig minnir frá 21 til 22:30 eða eitthvað um það leyti. Það er þess virði að mæta á þeim tíma og setjast niður og horfa. Þvílík og önnur eins fegurð!

Sagrada Familia - stórbrotnasta og fallegasta bygging sem ég hef séð!

Ef þið eruð að pæla í því að skella ykkur í helgarferð í ár, þá mæli ég 100% með Bareclona. Þið verðið sko alls ekki svikin!

xx

Rósa Soffía


 
 
 

Comments


Bloggfærslur
Nýlegar færslur
Leitarorð: 
Follow Us
  • Facebook Classic
  • Twitter Classic
  • Google Classic

© 2023 by PERSONAL TRAINER. Proudly created with Wix.com

bottom of page