Marbella lífið
- rosasoffiaharalds
- Jul 5, 2017
- 2 min read
Núna er liðið allt of langt síðan ég setti inn hérna smá update á mér. Ég gisti á hóteli í 6 nætur þar sem ég gat ómögulega hugsað mér að gista í gamla húsinu lengur. Það var bara of skítugt fyrir menn smekk :/ Ég pantaði mér herbergi á hóteli sem heitir Hotel Villa San Fransisco og er ótrúlega krúttlegt og notalegt. Starfsfólkið þar var yndislegt og stjanaði gjörsamlega við mig.

Svalirnar á hótel herberginu mínu

Náði loksins að leggjast út í sólbað - gleymdi því miður að taka mynd af garðinum

Það var hlaupabretti og skíðavél (og hjól) þarna á hóteli við hliðiná sundlauginni
Þið verðið að afsaka myndgæðin hjá mér. Ég gleymi svo oft að taka myndir, nema bara á snappinu. Og svo tek ég svo oft myndbönd, en ekki myndir. Þetta er klárlega eitthvað sem ég þarf að fara að taka mig á í. Maður vill eiga myndir líka, ekki bara snapchat video :/
Á mánudagsmorguninn flutti ég svo í lítið stúdíó herbergi, þar sem skrifstofurnar eru til húsa. Húsið er í mjög fínu hverfi sem heitir Nueva Andalucia og ræktin er í 2ja mínútna göngu fjarlægð frá mér. Ég er búin að koma mér ágætlega fyrir hérna og líkar mjög vel.

Sundlaugin og útsýnið í nýja húsinu

Nýja skrifborðsaðstaðan mín
Við erum að vinna soldið mikið hérna ennþá, eða til um 18 eða 19 alla virka daga. Ég vonast til að það fari að minnka eitthvað á næstunni, svo maður geti notið sólarinnar aðeins meira. Ekki kom ég hingað út til að loka mig inni ;)
Eftir 10 daga flytur Elín Mist svo loksins út til mín. Ég get ekki beðið. Og ekki hún heldur!! Við höfum ekki verið svona lengi aðskildar síðan árið 2007 þegar ég fór út í skiptinám. Það verða sko skemmtilegir endurfundir þann 16.júlí á Malaga flugvelli!! Ekki nóg með að Elín sé að koma, heldur ætlar Edda vinkona að koma á sama tíma með minnstu dóttur sína hana Lilju og þær ætla að vera hjá okkur í 2 vikur. Þá verður sko gert margt og mikið skemmtilegt.
Ég ætla að reyna eins og ég get að setja færslur og myndir hérna inn a.m.k. tvisvar sinnum í viku til að leyfa ykkur að fylgjast með. Þó ég sé dugleg að setja inná snappið mitt: rosasoffia, þá eru bara ekki alltaf allir sem geta fylgst með snappinu á hverjum einasta degi, þannig er það nú bara :)
Þangað til næst
xx
Rósa Soffía
Comentarios