top of page

Lélegasti bloggarinn vol milljón

  • rosasoffiaharalds
  • Sep 3, 2017
  • 2 min read

Sæl veriði enn og aftur kæru lesendur. Núna er ég mætt aftur á bloggið eftir alltof langan tíma í burtu. Ég held að ég ætti alveg möguleika á að hljóta verðlaun sem besti lélegasti bloggarinn! En ástæður hvarf míns eru ofur einfaldar: lélegt internet, mikill gestagangur og lítill tími. En núna erum við Elín Mist fluttar í okkar eigin íbúð með mjög gott internet, sumarið er búið svo heimsóknum fækkar og þar af leiðandi er meiri tími til aflögu fyrir bloggið.

Ég blogga samt sem áður ekki af skyldurækni. Ég blogga því mér finnst gaman að skrifa og tjá mig. Mér finnst gaman að deila hugsunum, hugmyndum, reynslu og myndum. Kannski er ég með vott af athyglissýki, hver veit. Það er þá líklegast til komið eftir að hafa alist upp með fyrirferðarmiklum strákum og verandi eina stelpan á heimilinu þurfti ég að hafa mikið fyrir því að fá athygli (uppgötvaði svo á unglingsárunum hvernig ég gæti öðlast athyglina, en við skulum ekki fara nánar út í þá sálma hér höhömm).

Ég er með nokkrar færslur í huga fyrir september, en mig langar til að byrja eftir þessa bloggpásu á því að deila myndum síðasta mánaðar með ykkur.

Við fórum til Gíbraltar og hittum alla apana

Gíbraltar

Gíbraltar

Old town

Mamma og pabbi í heimsókn

Í miðbænum

Nýtt tattoo - við Edda fengum okkur alveg eins!

Edda kom í heimsókn

Fórum í tívolí

Aðeins farið á ströndina líka

Puerto Banús - snekkjubátahöfnin

Útimarkaður hjá Puerto Banús

Er búin að vera mjög dugleg að æfa úti - á eftir að sýna ykkur hugmyndir :)

Þetta er bara brot af því sem við höfum verið að bralla hérna. Við erum búnar að fara til Gíbraltar, Ronda og El chorro sem dæmi, og við erum búnar að fá Eddu vinkonu og foreldra mína í heimsókn. Ég er búin að vera mjög dugleg að æfa, bæði í ræktinni og úti æfingum, við erum búnar að flytja og erum núna að vinna í því að fá Elínu inní skóla.

Ég mun svo fljótlega sýna ykkur housetour á nýju íbúðinni, við erum að fara til Barcelona á Lady Gaga tónleika og Edda vinkona kemur bráðum aftur í heimsókn. Þið getið fylgst með þessu öllu á snap og insta, er þar undir nafninu mín (rosasoffia). En ég mun líka vera dugleg að blogga :)

xx

Rósa Soffía


 
 
 

Comments


Bloggfærslur
Nýlegar færslur
Leitarorð: 
Follow Us
  • Facebook Classic
  • Twitter Classic
  • Google Classic

© 2023 by PERSONAL TRAINER. Proudly created with Wix.com

bottom of page