First impressions
- rosasoffiaharalds
- Jun 22, 2017
- 2 min read
Ég lenti á Malaga flugvelli kl 12:30 á sunnudegi í 29 stiga hita. Starfsmaður hjá fyrirtækinu sem ég fékk vinnu hjá, kom og sótti mig á völlinn. Það er hálftíma akstur til Marbella og við spjölluðum á leiðinni um staðinn, Spánarlífið, vinnuna og dætur okkar, sem eru jafn gamlar. Við fórum í húsið sem starfsstöðvar fyrirtækisins eru, sem eru aðeins út fyrir bæinn, rétt uppí fjallshlíð. Þar búa aðrir 2 starfsmenn fyrirtækisins og eigandinn, og þar var einnig búið að útbúa herbergi fyrir mig. Við erum núna 5 íslendingar sem vinnum hérna og ein stelpa frá Armeníu.
Húsið er risa stórt, á þremur hæðum með stórum garði og sundlaug. Því miður er þetta samt allt meira og minna ekkert eða illa hirt um, og því lítið hægt að njóta þess sem þetta frábæra hús gæti annars boðið uppá. Mér leist ekkert á herbergið mitt og gat ekki hugsað mér að sofa í því fyrr en ég væri búin að þrífa þar inni. Það var mjög augljóst að skítastuðullinn minn var aðeins of hár fyrir þetta hús.... En það var búið að festa kaup á nýju húsi fyrir skrifstofuna, og þar eru líka aukaherbergi sem ég get mögulega fengið aðgang að. Svo ég vissi að þetta væri bara tímabundið ástand, og ég gat nú sætt mig við það.
Mér líst rosalega vel á Marbella. Þetta er strandbær mjög sunnarlega á Spáni, með Morokkó og Gíbraltar innan seilingar. Bærinn er ekkert rosalega stór, hér búa kannski um 150-200 þúsund manns. Bærinn er sennilega þekktastur fyrir Puerto Banús sem er snekkju-báta-höfn þar sem margar Hollywood stjörnur eiga snekkjur og koma hingað reglulega.

Í gær var svo nýja húsið afhent og ég fékk að fara og sjá. Þetta er mjög nýlegt og flott hús, á tveimur hæðum, með þak-svölum og sundlaug í garðinum. Þarna fæ ég herbergi, sem er með sér inngang, sér baðherbergi og fataherbergi og get verið þar fram á haust þangað til það er auðveldara að finna sér íbúð á góðum stað í bænum. Íbúðarverð hækka líka soldið hérna á sumrin og margir vilja að fá amk 6 mánaða leigu fyrirframgreidda. Við munum flytja skrifstofuaðstöðuna í húsið á næstu dögum, versla rúm og fleiri húsgögn og flytja allt yfir, sennilega fyrir eða um helgina. Ég verð að viðurkenna að ég get ekki beðið!!
Einnig er ég búin að festa bílaleigubíl, og fer að sækja hann á eftir. Það verður algjör draumur að geta komist ferða minna sjálf hérna og öðlast meira frelsi. Mér er illa við að þurfa að biðja um far hingað og þangað, svo ég hef lítið gert af því og þar af leiðandi meira og minna haldið mig hérna í húsinu. En þegar ég er komin með bílaleigubílinn get ég farið út að borða þegar ég er svöng, farið í ræktina þegar mig langar og farið í verslunarmiðstöðina ef ég vil. Það verður draumur.
xx
Rósa Soffía
Comments