Ronda
- rosasoffiaharalds
- Jan 3, 2018
- 2 min read
Við Elín vorum mjög duglegar síðasta sumar að ferðast um á Spáni. Einn af þeim stöðum sem stóð hvað mest uppúr heitir Ronda. Ronda er á Andalúsíu svæðinu svo ef þið farið til Malaga eða eruð á Costa del Sol ströndinni þá er lítið mál að leigja sér bílaleigubíl og kíkja yfir til Rondu. Mér fannst mjög leiðinlegt að þurfa að keyra þangað sjálf, því ég hefði viljað fá að vera farþegi til að geta notið útsýnisins til fulls. Vegurinn er langt uppí fjalli og útsýnið er algjörlega ólýsanlegt. Ég tók mjög mikið af myndum, en því miður skemmdist síminn minn nokkrum dögum eftir þessa ferð og ég var ekki búin að bakka upp myndirnar, svo ég missti þær allar og verð enn mjög sorgmædd þegar ég hugsa til þess, því þetta eru myndir sem ég hefði viljað eiga alla ævi. Elín sendi mér nokkrar af þeim myndum sem hún tók og einnig fann ég nokkrar með hjálp frá vini mínum honum Goggla til að setja hér inn.




Við vorum þarna um miðjan júlí svo það var um 38-40 gráðu hiti, sem gerði það að verkum að við gátum ekki hugsað okkur að labba alla leið niður í gilið, El Tajo, sem er aðal "attraction" bæjarins. Yfir gilinu er svo brúin 'Puento Nuevo" sem við skoðuðum og löbbuðum bæði yfir og undir. Einnig skoðuðum við nautabana-hringinn sem er sá elsti á Spáni og er enn þann dag í dag notaður, einu sinni á ári. Við löbbuðum líka inní bæinn og skoðuðum verslunargötuna og þar var mjög mikið af allskonar skranbúðum sem hægt væri að dunda sér endalaust við að skoða.


Við borðuðum svo á veitingastað þar sem við höfðum útsýni beint inní gilið og yfir brúnna. Það var ólýsanleg tilfinning að borða góðan mat, í góðu veðri með svona fallegt útsýni. Þegar við vorum búnar að skoða bæinn vel keyrðum við aðeins út fyrir til að skoða lítið vatn sem búið var að segja okkur frá; Cueva Del Gato, og sá staður er algjörlega paradís á jörðu. Við vorum þarna á sunnudegi svo það var mikið af fólki, ef ég færi þarna aftur þá myndi ég velja mér virkan dag, til að hafa aðeins meira næði, koma með handklæði, teppi, picnic og hafa það kósý.



Ég mæli svo ótrúlega mikið með þessum stað og það er algjörlega á listanum mínum að fara þangað aftur og taka billjón myndir og bakka þær upp jafn óðum.
Ég hef ferðast mjög víða og tek mikið af myndum á mínum ferðalögum og mun hafa það fastan lið hérna á blogginu að sýna ykkur frá mínum uppáhaldsstöðum, svo vonandi líkar ykkur vel að lesa svona færslur.
xx
Rósa Soffía
Comments