Karamellu kjúlli
- rosasoffiaharalds
- Jan 7, 2018
- 2 min read
Ég sá um kvöldmatinn á Furugrundinni í kvöld og ákvað að gera uppáhalds kjúklinginn okkar Elínar. Þessi réttur er svo ótrúlega einfaldur og fljótlegur en slær allsstaðar í gegn þar sem ég hef borið hann fram. Ég er ekki mikið fyrir eldamennskuna og kýs því alltaf að elda mat sem tekur stuttan tíma og krefst þess ekki að ég þurfi að eyða heilum og hálfum deginum í eldhúsinu. Einnig finnst mér uppskriftir þar sem þarf mörg hráefni leiðinlegar. Það myndi allt renna út hjá mér og væri þá máltíðin orðin ansi dýr.
Ég kýs að kalla þennan rétt "karamellu kjúlli" því marineringin bragðast soldið eins og karamella. En marineringin er búin til úr tveimur hráefnum: rauðu pestó og sírópi. Að sjálfsögðu getur fólk notað hvaða tegundir og það magn sem þeim hentar en ég notaði eina krukku af Jamie Oliver rauðu pestó og eina flösku af Golds sírópi. Þetta set ég bara saman í skál og hræri saman. Svo raða ég kjúklingabringunum í eldfast mót, krydda með salti og pipar og helli marineringunni út á og velti bringunum aðeins uppúr henni. Þetta fer svo inn í heitan ofn í u.þ.b. hálftíma á 160-180 gráður. Ofnar geta samt verið misjafnir, svo ég mæli alltaf með að fylgjast bara með og ekki taka svona tíma heilaga, Að þessu sinni var ég með hrísgrjón, Þykkvabæjar-kartöflugratín (vegna sérstarkar beiðni) og ferskt salat með furuhnetum í meðlæti. Maturinn sló í gegn og meira að segja pabbi minn, sem er alls ekki mikið fyrir púdduna (eins og hann kallar kjúkling) var hæstánægður og sagði margoft að þetta væri mjög gott. Ég bara get ekki mælt nógu mikið með þessum rétti.



xx
Rósa Soffía
Comments