top of page

Af hverju fæ ég harðsperrur?

  • rosasoffiaharalds
  • Oct 30, 2016
  • 2 min read

Ég fæ mjög oft harðsperrur, þrátt fyrir að æfa 5-6 sinnum í viku, og alltaf verður fólk verður jafn hissa að heyra það. Það er mikill misskilningur að maður hætti að fá harðsperrur þegar maður æfir reglulega. Jú, að vísu hættiru kannski að fá harðsperrur ef þú ert alltaf að gera sömu æfingarnar eða ert á fjórðu eða fimmtu viku á sama æfingaprógramminu, af því að þá er líkaminn farinn að venjast æfingunum. En ef þú ert stanslaust að breyta til á æfingum, breyta þyngdum, repsum, settum og þess háttar, þá er mjög eðlilegt að finna alltaf fyrir smá harðsperrum.



Þegar við erum að æfa og reyna á vöðvana, þá erum við að brjóta þá niður og skemma vöðvafrumurnar. Svo þegar viðgerðarferlið fer af stað þá fylgja því þessir verkir sem við köllum harðsperrur og það er mjög misjafnt eftir einstaklingum hvenær við byrjum að finna fyrir þessum verkjum. Sumir finna fyrir harðsperrum nokkrum klukkutímum eftir átök, sumir daginn eftir og enn aðrir á öðrum degi. Þrátt fyrir ítrekaðar rannsóknir virðist ekki vera hægt að útskýra hvað veldur því.


Það er þá í raun ekki hægt að koma í veg fyrir harðsperrur, nema bara með því að hætta alfarið að reyna á vöðvana. Í mínum huga er það ekki möguleiki, og ég tek í rauninni harðsperrunum fagnandi, því mér finnst það vera merki um að ég hafi staðið mig vel á æfingu og núna sé líkaminn minn að byggja sig upp eftir átökin. Margir halda því fram að harðsperrur séu eitthvað sem einungis byrjendur fá og séu merki um að þú sért í slæmu formi, en þvert á móti, þá eru harðsperrur merki um það að líkaminn þinn sé að verða sterkari.


En það eru samt sem áður nokkrir hlutir sem maður getur gert til að reyna að draga aðeins úr því að maður fái miklar harðsperrur. Ef þú byrjar æfinguna á að hita vel upp þá vöðva sem þú ert að fara að nota t.d. með aktívum teygjum, nuddrúllu og léttum æfingum með teygju, þá er vöðvinn betur undir það búinn að byrja átök. Eftir æfinguna er svo gott að teygja vel á þeim vöðvum sem notaðir voru. Byrjaðu hægt! Ef þú hefur ekki æft lengi, ekki þá ætla þér allan heiminn á fyrstu vikunum, leyfðu líkamanum að venjast álaginu smátt og smátt. Það er ekkert að því að vera byrjandi í ræktinni!



En þegar harðsperrurnar eru komnar er lítið hægt að gera til að minnka þær. Það eru nokkrir hlutir sem geta reynst ágætir og dregið kannski úr mesta „sársaukanum“ ef harðsperrurnar eru orðnar mjög slæmar. Þá er t.d. hægt að fara í heitt bað, teygja vel á, fara í göngutúr eða jafnvel setja kaldan bakstur á auma vöðvann.


Gangi ykkur vel og fögnum harðsperrunum!

xx

Rósa Soffía

Snapchat: rosasoffia

 
 
 

Comments


Bloggfærslur
Nýlegar færslur
Leitarorð: 
Follow Us
  • Facebook Classic
  • Twitter Classic
  • Google Classic

© 2023 by PERSONAL TRAINER. Proudly created with Wix.com

bottom of page