Æfingamyndband - axlir
- rosasoffiaharalds
- Aug 12, 2016
- 1 min read
Góða kvöldið kæru lesendur :) Ég elska að búa til æfingamyndbönd í iMovie og deila þeim með ykkur. Þessa axlaræfingu tók ég með vinkonu minni úti á Kanarí í sumar, þess vegna er svona mikil sól í bakgrunninum. Yndislegt að æfa í 30 gráðu hita, enda vita þeir sem fylgjast með mér að ég elska að svitna, það er bara eitthvað við það, mér líður svo yndislega vel eftirá :) En allavega, hér er myndbandið, endilega horfið á og deilið gleðinni.
Hér er æfingin í heild sinni ef þið viljið prófa: Hita upp axlir með léttum lóðum/teygju fyrst
1. Sitjandi axlapressa með lóð 5x5 Superset:
2A. Hliðarlyftur 4x15
2B. Stuttar hliðarlyftur 4x15
Superset:
3A. Framhallandi hliðarlyftur 3x25 3B. Framlyftur með lóð til skiptis 3x20 Superset:
4A. Uppréttur róður 4x12 4B. Face pulls í kaðli 4x20
Superset:
5A. Róður fyrir aftari axlir 4x15
5B. Framlyftur alla leið upp 4x20 Endilega látið mig vita ef þið takið æfinguna hvernig ykkur gekk :)
xx
Rósa
Snapchat og instagram: rosasoffia og ekki gleyma að læka hér að neðan svo ég viti að einhver sé að fylgjast með....
Comentarios