top of page

Jólagjafahugmyndir fyrir ræktar stelpuna

  • rosasoffiaharalds
  • Dec 13, 2016
  • 2 min read

Yfirleitt þegar ég er spurð hvað mig langi í jólagjöf, þá dettur mér helst í hug hlutir sem tengjast ræktinni á einhvern hátt. Í gegnum árin hef ég til dæmis fengið í jólagjöf frá mömmu og pabba æfingatösku, æfingadýnu og æfingaföt, svo eitthvað sé nefnt. Því datt mér í hug að skella í eitt stykki jólagjafahugmyndalista fyrir ræktar stelpur. Ég er nokkuð viss um að hver ein og einasta ræktarstelpa á eitthvað á þessum lista og það sem hún á ekki, langar henni í.

Fyrst langar mig að nefna Lífsstílsdagbókina fyrir árið 2017. Ég er nú þegar búin að kaupa mér þessa dagbók og er ótrúlega spennt að byrja að nota hana. Þú getur haldið vel utan um markmið, mælingar, æfingar og mataræðið í þessari veglegu dagbók! Þessa dagbók er hægt að versla á facebook síðunni Lífsstílsdagbók 2016.

Næst ber að nefna eitt það mikilvægasta í æfingatösku hverrar stelpu! Æfingateygjur. Ég á nokkrar tegundir af slíkum, í ýmsum styrkleikum, keyptar hér og þar. En svona pakkar með 3-4 mis stífum teygjum fást meðal annars hjá www.n.is og www.sportvorur.is

Einnig finnst mér nauðsynlegt fyrir stelpur sem æfa mikið að eiga nuddrúllu. Hjá Sportvörum færð þú allskonar rúllur; titrandi, mjúkar, harðar, stórar eða litlar. Mæli með að fara þangað og skoða úrvalið og fá ráðgjöf.

Margir velta fyrir sér hvar þeir eigi að geyma símann sinn á meðan þeir æfa. Þegar þú ert komin með iPhone 6 eða aðra stóra síma þá er ekki alveg að virka að hafa hann í þar til gerðum töskum á handleggnum, þar sem þú vilt nú geta hreyft hendurnar á æfingu. Þá er mjög sniðugt að nota flipbelt. Þessi belti fást hjá Hreysti og eru mittisbelti sem þú hefur á þér á meðan þú æfir og getur geymt símann, kortið, lyklana í á meðan þú æfir. Þú getur meira að segja hlaupið með beltið og það helst á sínum stað.

Önnur vara sem er mjög gaman að eiga, en kannski ekki jafn "nauðsynleg" og þær sem ég taldi upp hér að ofan, en það er æfingaúr eða púlsúr. Þá geturu fylgst með púlsinum þínum á æfingu og séð hversu mörgum hitaeiningum þú ert búin að brenna. Það er mjög gott úrval af þessum úrum til bæði hjá Hreysti og Fitnesssport.

Síðast en ekki síst, og jafnvel allra mikilvægasti hluturinn er svo þráðlaus headphones. Það er fátt meira pirrandi en snúran í heyrnatólunum þegar maður er að hlaupa eða lyfta. Ef þú hefur prófað að æfa með þráðlaus heyrnatól, þá veistu hvað ég er að tala um. Þetta er bara allt annað líf. Miklu betra líf. Ég er einmitt með svona heyrnatól efst á mínum óskalista þessi jólin, þar sem mín eru nýbúin að skemmast. Ég skoðaði vel yfir úrvalið hjá Elko og þessi leist mér vel á og kosta öll á milli 10-15 þús kr.

Ég vona að þessi upptalning komi einhverjum að góðum notum fyrir jólin.

xx

Rósa Soffía

 
 
 

Comments


Bloggfærslur
Nýlegar færslur
Leitarorð: 
Follow Us
  • Facebook Classic
  • Twitter Classic
  • Google Classic

© 2023 by PERSONAL TRAINER. Proudly created with Wix.com

bottom of page