Uppáhalds í september
- rosasoffiaharalds
- Oct 6, 2016
- 3 min read
Nýr liður á blogginu mínu!! Þrátt fyrir að ég vinni sem einkaþjálfari og líkamsrækt sé mitt aðal áhugamál, þá er ég einnig mjög mikil áhugamanneskja um snyrtivörur, sjónvarpsþætti og innanhús-fínerí. Því ákvað ég að hafa þennan lið á blogginu með uppáhaldsvörum frá öllum þessum áhugasviðum mínum! Ég ætla ekkert að hafa þetta neitt lengra og sýni ykkur hérna mínar uppáhaldsvörur í september, sem eru 7 talsins.
1. Nuddrúlla.

Ég keypti mér þessa rúllu á aha.is í sumar, en ég hef aldrei notað hana jafn mikið eins og núna þennan síðasta mánuð. Ég nudda mig nánast fyrir og eftir hverja einustu æfingu og þvílíkur unaður!! Mæli með að allir sem stundi mikla líkamsrækt eignist svona rúllu. En kostir við það að rúlla er alveg efni í annan pistil, en þið getið fræðst aðeins um það til dæmis hér.
2. Ilmkerti frá Mörtu Jonsson.


Þessi ilmkerti frá Mörtu eru svo falleg og stílhrein með yndilsegum vanillu-ilm. Ég hef átt þónokkur svona kerti og elska þau. Þau fást í verslun Mörtu Jonsson á Laugaveginum.
3. Beta Alanine í töfluformi.

Þetta eru töflur til þess að taka fyrir og eftir æfingu, þó ég hafi reyndar bara verið að taka þær fyrir æfingu. En þetta er sem sagt amínósýran sem er í flestum pre-workout drykkjum og veldur þessum pre-kláða sem við líkamsræktarfólkið könnumst við og elskum svo mikið. Ég keypti töflurnar hjá Hreysti og þið getið lesið um þær hér.
4. Sleek face-form pallettan


Þessi palletta er með þeim bestu kaupum sem ég hef gert. Þetta er contour-highlight-blush, allt saman í einni pallettu, hversu mikil snilld er það? Allir litirnir eru svo fallegir og pigementaðir og blandast einstaklega vel. Ég gæti ekki mælt nógu mikið með þessari. Ég keypti mína hér á haustfjord.is í litnum fair.
5. Start Sportwear æfingabuxur.

Þessar æfingabuxur eru íslensk hönnun og ég keypti þær hér. Litirnir í þeim eru svo fallegir, verðið er ótrúlega gott, þær haldast vel uppi og eru ekki gegnsæjar. Ég var svo ánægð með þessar ég er búin að versla mér aðrar buxur frá þeim.
6. Shadowhunters á Netflix.

Ég rakst á þessa þætti á Netflix einn daginn þegar ég var algjörlega uppiskroppa með allt til þess að horfa á, og ákvað að gefa þeim séns. Ég var ekki lengi að klára alla seríuna, þeir eru það góðir! Þeir fjalla um Clary sem uppgötvar allt í einu að hún er ekki bara venjuleg stelpa og að það er til annar og allt öðruvísi heimur en sá sem við öll þekkjum. Þessir þættir flokkast sem sci-fi því það eru allskonar yfirnáttúrulegar verur og hlutir sem eiga sér stað, en ég meina, hver elskar ekki svoleiðis?
7. Daredevil á Netflix.

Nú hef ég ekki séð né lesið neitt annað um Daredevil nema þessa þætti á Netflix, svo ég hef kannski engan samanburð, en ég ELSKA ELSKA ELSKA þessa þætti. Það eru ekki margir þættir sem ég get horft á án þess að sofna, en þessir þættir héldu mér vakandi langt fram eftir, nóttu eftir nóttu! Þeir eru bara svo hrikalega spennandi. Mæli ótrúlega mikið með! Og já ef þið eruð ekki með Netflix, þá mæli ég líka eindregið með því að vera með Netflix, svo þægilegt!
Vonandi fannst ykkur gaman að sjá nokkra hluti sem ég er búin að halda mikið uppá, mér fannst allavega mjög gaman að sýna ykkur. Ég vil líka biðjast afsökunar á myndgæðunum hjá mér, ég á bara því miður enga fancy myndavél. Þangað til næst xx
Rósa Soffía
Comments