top of page

Hvernig veit maður hvaða matur er hollur?

  • rosasoffiaharalds
  • Sep 23, 2016
  • 3 min read

Sem einkaþjálfari þá fæ ég þessa spurningu ansi oft. Eru flatkökur hollar? Er hollt að borða mikið af ávöxtum? Er hollt að drekka kaffi? Er hollt að borða kjöt með fitu? Og svona gæti ég haldið endalaust áfram.


En hvernig á maður að flokka út hvað er hollt og hvað ekki?

Það er sko hægara sagt en gert, skal ég alveg fúslega viðurkenna. Sumir vilja segja að ef vara er sykurlaus, þá sé hún holl. Sumir horfa á hitaeiningarnar. Sumir segja að ef vara innihaldi lítið af kolvetnum þá sé hún holl. Skoðanirnar á þessu eru jafn margar og þær eru ólíkar.


Ég er ótrúlega gamaldags í þessum efnum og ég vil bara segja að allur matur sé hollur, sé hans neytt í hófi. Að eiga heilbrigt samband við mat og sinn líkama, það er hollt!!! Að neita sér um heilu fæðuflokkana, bara í þeim eina tilgangi að grennast, það er ekki hollt. Líkaminn okkar er gerður til þess að innbyrða mat. Við kunnum að tyggja hann, kyngja, melta og skilum honum svo aftur þegar líkaminn er búinn að nota það sem hann getur úr matnum. Af hverju ættir þú að hætta að borða brauð, ef það væri eitt það besta sem þú fengir? Af hverju ekki frekar að leyfa sér einstaka sinnum uppáhaldsbrauðið sitt, og þá fá sér bara 1-2 sneiðar. Það er ekki að fara að gera þig feita/n. Hér er ég að sjálfsögðu ekki að tala um fólk sem hættir að borða ákveðnar fæðutegundir vegna vanlíðan eða matarfíknar.

Þegar uppi er staðið þá er þetta ofsalega einfalt. Ef þú borðar fleiri hitaeiningar en þú brennir yfir heildina, þá muntu fitna. Hins vegar ef þú borðað færri hitaeiningar en þú brennir yfir heildina, þá muntu grennast. Það er mjög gott að nota appið Myfitnesspal til að fylgjast með hitaeiningum, en ég mæli alls ekki með að festa sig algjörlega í því, en það er gott að styðjast við það sérstaklega til að byrja með þegar maður er að læra á hversu mikið maður á að borða.


Því jú, ef maður vill halda sér í formi, þá þurfa nú flestir aðeins að hafa fyrir því. En það þarf ekki að neita sér um allt, fara í detox eða taka endalaust einhverja “kúra”. Það er líka hægt að borða bara mat sem þér þykir góður, en gæta sér bara hófs og hreyfa sig svo í a.m.k. 30 mínútur á dag. Ef þú ert ekki að fara að keppa í einhverri íþrótt, þá eru allar öfgar bara algjörlega óþarfi, og munu að öllum líkinum bara skemma fyrir þér til lengri tíma, t.d. með hægari grunnbrennslu, ofþjálfun, þreytu, stífum vöðvum og jafnvel átröskunarsjúkdómum.


Ekki taka því samt sem svo að ég sé að segja að KFC, franskar kartöflur, bland í poka eða annað sé holl fæða. En það er ekkert að því að leyfa sér þannig einstaka sinnum, ef það er bara einstaka sinnum. Ef þú drekkur nóg vatn þá mun líkaminn vinna úr þessu og skila þessu svo frá sér á sinn hátt. En hann fær að sjálfsögðu enga næringu úr þannig fæðu. Þess vegna er mjög mikilvægt að borða líka fæðu með góð næringargildi (það er kannski efni í aðra bloggfærslu síðar). En í fljótu bragði get ég nefnt ávexti, grænmeti, egg, kjöt, fisk og haframjöl.


Það er hollt að borða góðan mat, hugsa vel um sjálfan sig og líða vel. Það er ekki hollt að rífa sig niður fyrir að fá sér kex á þriðjudegi eða pizzu á fimmtudegi. Við eigum bara eitt líf og við eigum að njóta þess. Það er ekkert líf að geta aldrei leyft sér það sem manni þykir gott, þurfa að sitja ein/n út í horni að borða þurran kjúkling úr tupperware boxi á meðan aðrir fá sér köku eða líða illa í heilan dag yfir því að þú borðaðir eitthvað sem þú varst búin að “banna” þér að borða. Heilbrigt samband við mat og að líða vel í eigin skinni, eins og þú ert í dag, það er hollt.

xx

Rósa Soffía

Snapchat: rosasoffia

 
 
 

Comments


Bloggfærslur
Nýlegar færslur
Leitarorð: 
Follow Us
  • Facebook Classic
  • Twitter Classic
  • Google Classic

© 2023 by PERSONAL TRAINER. Proudly created with Wix.com

bottom of page