top of page

Æfingamyndband: Legs & Booty

  • rosasoffiaharalds
  • May 21, 2017
  • 1 min read

Núna er sumarið loksins að skella á og þá finnst mér oft erfitt að vera inni í ræktinni að æfa. Þá finnst mér æðislegt að fara út að hlaupa, koma við í ræktinni og taka nokkrar æfingar og hlaupa svo heim aftur. Þetta gerði ég á föstudaginn. Hljóp 2,5 km í ræktina, tók þar nokkrar góðar fóta- og bossaæfingar, og hljóp svo heim aftur. Þvílík og önnur eins gleði!! Ég verð þó að viðurkenna að hlaupahraðinn var ekki sá sami á leiðinni heim og hann var á leiðinni í ræktina, þeir voru eitthvað aðeins orðnir þyngri á sér fæturnir á heimleiðinni. En ég lét það nú ekki stoppa mig, ég skokkaði bara örlítið hægar heim á leið. Þar sem ég var ein í ræktinni þá nýtti ég mér það vel og tók upp allar æfingarnar og skellti í eitt æfingamyndband. Ég er ennþá með smá harðsperrur í aftanverðum lærunum eftir þessa veislu, svo ég mæli klárlega með að þið prófið!


Endilega leyfið mér að heyra frá ef þið prófið :)

xx

Rósa Soffía

Snapchat: rosasoffia


 
 
 

Comments


Bloggfærslur
Nýlegar færslur
Leitarorð: 
Follow Us
  • Facebook Classic
  • Twitter Classic
  • Google Classic

© 2023 by PERSONAL TRAINER. Proudly created with Wix.com

bottom of page