Af hverju að þurrbursta?
- rosasoffiaharalds
- May 18, 2017
- 2 min read
Hversu oft hefur maður að þurrburstun sé góð fyrir húðina og geti dregið úr appelsínuhúð? Sjálf hef ég margoft heyrt þetta og ætlað að byrja á þessu, en endist svo kannski í 3 daga og þar af leiðandi get ég ekkert sagt til um hvort þetta virki fyrir mig eða ekki. Hins vegar langar mig virkilega mikið til að láta reyna á þetta og sjá hvort þetta sé satt. Ég settist niður fyrir framan tölvuna og skoðaði nánast allt sem ég fann um þurrburstun á netinu og ákvað að deila því með ykkur í leiðinni.
Húðin er víst stærsta líffærið okkar og því mikilvægt að hugsa vel um hana. Með því að þurrbursta hana þá fjarlægir maður allar dauðar húðfrumur og hreinsar og mýkir húðina á sama tíma. En hvað er það nákvæmlega sem þurrburstunin á að gera fyrir mann? Hér koma nokkrir punktar sem ég fann.
Eykur blóðflæði og getur þar af leiðandi minnkað/komið í veg fyrir appelsínuhúð
Örvar taugakerfið og vöðva
Losar um stíflur í húðinni, þannig að hún á auðveldara með að nærast
Minnkar líkur á bjúgsöfnun í húðinni
Hvetur til framleiðslu nýrra húðfruma
Það er víst mjög mikilvægt að velja réttan bursta í verknaðinn. Best er að hann sé með náttúrulegum hárum og sé eilítið grófur, en samt kannski ekki það grófur að húðin rispist mikið. Burstinn sem ég á er frá Body Shop, en ég býst við að þeir fáist líka í Apótekum og Hagkaup til dæmis. Annað mikilvægt atriði er að bursta sig FYRIR sturtu eða bað á meðan húðin er þurr, en ekki þegar hún er blaut. Það þarf ekki að taka sér langan tíma í þurrburstunina, 2-5 mínútur er talið vera alveg nóg.

Ég fann einnig leiðbeiningar skref fyrir skref og ætla að deila þeim hér líka:
Burstaðu húðina þegar hún er þurr, áður en þú ferð í sturtu eða bað
Burstaðu uppá við og í hringi (í átt að hjartanu er oft talað um)
Mælt er með að byrja neðst á líkamanum og vinna sig upp
Farðu varlega á svæðum þar sem húðin er viðkvæm
Skolaðu svo líkamann svo að allar dauðu húðfrumurnar fari af
Best er að skola fyrst með heitu vatni og kæla það svo örlítið
Berðu á þig gott krem eða olíu eftirá sem gefur góðan raka
Gott er að bera á sig feitt krem eða olíu til þess að gefa húðinni góðan raka á eftir. Það er mikilvægt að velja krem sem er feitt og gefur húðinni góðan raka.

Eftir að hafa lesið mig svona vel til um þetta hef ég ákveðið að gefa þurrburstun meiri séns. Ég ætla að gera þetta daglega í 2-5 mínútur fyrir sturtu í mánuð og sjá hvort húðin mín breytist eitthvað við það. Ég mun taka fyrir og eftir myndir til að bera saman og sé svo bara til hvort ég muni þora að deila þeim með ykkur. En ég mun allavega láta ykkur vita hvort mér finnist þetta virka eða ekki.
xx
Rósa Soffía
Comments