Beauty box áskrift
- rosasoffiaharalds
- Apr 27, 2017
- 1 min read
Hver elskar ekki að fá pakka? Ég er amk ein af þeim, og þar sem ég elska snyrti- og förðunarvörur þá fannst mér eitthvað sérstaklega heillandi við það að vera í áskrift að Beauty boxi. Í hverjum mánuði kemur nýtt box með óvæntum glaðningum!

Ég fékk fyrsta boxið mitt núna í vikunni og varð alls ekki fyrir vonbrigðum. Ég keypti mér 12 mánaða áskrift og þá kostar mánuðurinn ekki nema 13 pund (sem er um 1850 íslenskar krónur). Vörurnar í boxinu voru klárlega meira en 1850 króna virði. (Ég greiddi svo um 1000 kr á pósthúsinu í tollmeðferðargjöld og vsk). Þetta er líka svo skemmtilegt að því leytinu til að maður getur prófað vörur sem maður myndi ekki endilega detta í hug að versla sér sjálfur eða hreinlega veit ekki af því að þær séu til, þar sem þær fást ekki hérna á litla Íslandi.

Síðan sem er að selja þessa áskrift heitir www.lookfantastic.com og þau selja einnig fullt af öðrum snyrtivöru- og förðunarmerkjum og senda til Íslands. Meðal annars er hægt að versla þar vörur frá Stila, Benefit, Esté Lauder, Bourjois, Laura Geller, Nars, Rimmel og Sigma svo eitthvað sé nefnt.
Hér er linkurinn til að skoða og versla áskrift að Beauty boxinu.
xx
Rósa Soffía
Comments