Morphe áskriftarleiðir
- rosasoffiaharalds
- Apr 21, 2017
- 2 min read
MORPE - burstaáskrift
Í dag fékk ég mína mánaðarlegu sendingu frá Morphe. En ég er búin að vera í Morphe förðunar-bursta áskriftinni núna í nokkra mánuði og er ótrúlega ánægð með alla burstana sem ég hef fengið hingað til. Áskriftin kostar um 3000 kr á mánuði og í byrjun mánaðar fær maður senda 3-7 bursta. Mér finnst svo spennandi að vita ekki hvaða bursta ég er að fara að fá, þetta er í raun bara eins og maður sé að fá gjöf í hverjum mánuði :) Þetta eru mjög vandaðir og góðir burstar og því er þetta mjög sniðugt fyrir þá sem vilja eiga nóg af förðunarburstum. Einn vandaður bursti kostar til dæmis um 2-3 þúsund kr hér útí Hagkaup, svo að þetta margborgar sig. Í þetta skiptið komu 3 burstar.

Ef þú vilt gerast áskrifandi að burstunum, þá geturu gert það í gegnum þennan link hér og fengið einn auka bursta að gjöf.
KISS ME - Varalitaáskrift
Svo kom loksins pakki frá þeim sem ég var búin að bíða lengi eftir, en það er varalita-áskriftin. Ég elska fljótandi varaliti sem þorna mattir á vörunum, og á örugglega fleiri en getur talist eðlilegt. En það er aukatriði. Þegar ég sá að Morphe voru að byrja með varalita áskrift, þá bara varð ég að vera með. Fyrsta sendingin kom loks í dag. Þetta virkar eins og með burstana, nema það koma alltaf bara 3 varalitir og þeir koma í ótrúlega sætum gjafapoka, og verðið er einnig það sama og í burstaáskriftinni. Varalitirnir sem komu núna voru allir mjög fallegir og klæðilegir.

Ef þú vilt gerast áskrifandi að varalitunum, þá geturu gert það í gegnum þennan link hér og fengið einn auka varalit að gjöf.
Ég er ótrúlega ánægð með sendinguna að þessu sinni og hlakka strax til í næsta mánuði að sjá hvað kemur næst. Hingað til hef ég aldrei þurft að borga neitt aukalega á pósthúsinu þegar ég sæki pakkana, svo ég býst við að þeir sendi þetta þannig merkt frá sér. Mig langar til að taka það fram að þessi færsla er ekki kostuð eða sponsuð á neinn hátt. Hins vegar ef þið skráið ykkur í áskriftina í gegnum þessa linka frá mér, þá fæ ég einhverja punkta, sem ég held að ég geti svo leyst út í vörum.
xx
Rósa Soffía
Comments