top of page

Markaðssetning fæðubótaefna

  • rosasoffiaharalds
  • Mar 30, 2017
  • 2 min read

Ef það er eitthvað sem ég þoli illa, þá er það hvernig fæðubótaefni eru markaðssett. Hver hefur ekki séð auglýsingar um það hvernig þú getir losnað við magafituna með því að taka inn eitthvað ákveðið efni? Og það sem mér finnst eiginlega ennþá leiðinlegra er að enn er fólk sem trúir þessu og eyðir dýrmætum peningum sínum í allskyns „undraefni“ sem eiga að hjálpa til við að losna við bumbuna fyrir fullt og allt!



Um daginn sá ég á snapchat hjá einum „heilsusnappara“ að hún væri að taka CLA töflur. 3x á dag, 2 töflur. Þær ætti að taka með mat um morguninn, miðjan daginn og með kvöldmat. Hún mældi eindregið með þessum töflum og hvatti fólk til að gefast ekki upp á að taka þær inn, af því að þú sæir/finndir ekki árangur fyrr en eftir 5 vikur. Hvernig árangur tók hún ekki fram. Né hvaðan hún hefði þessar upplýsingar um að það tæki 5 vikur að sjá árangurinn. Líklegast þykir mér að sá sem seldi henni/gaf henni vöruna hefur látið þessar upplýsingar fylgja með kaupunum.


Þetta er ekki einsdæmi. Svona auglýsingar eru út um allt. Í sjónvarpinu. Í útvarpinu. Á snapchat. Á instagram. Á facebook. Ekki trúa öllu sem þið lesið/heyrið. Þetta er í laaaaaang flestum tilfellum auglýsingar frá fyrirtækjunum sem framleiða vörurnar og hagnast á því að þú kaupir hana. Hvort sem fyrirtækin eru sjálf að auglýsa eða greiða einstaklingum til að auglýsa hana fyrir sig.


Ég get alveg sagt ykkur það að ég hef alveg verið þessi týpa sem tók inn fullt af fæðubótaefnum. Ég drakk pre-workout, glútamín, BCAA, kreatín, próteinduft, tók inn CLA, ZMA og guð má vita hvað ég tók ekki. Ég var að eyða um 15-20 þús á mánuði í fæðubótaefni! En vitið þið hvað? Það gerðust engin kraftarverk. Fitan á vandamálasvæðunum mínum hvarf ekki, ég hafði ekki endalaust úthald og orku, ég var ekki laus við harðsperrur, ég svaf ekki alltaf vel og ég varð ekkert „massaðari“.



En vitiði hvað virkar? Að borða reglulega næringaríkan og vel samsettan mat og hreyfa sig samkvæmt markmiðum sínum. Ef markmiðið þitt er að massast, fá stærri rass eða mótaða upphandleggsvöðva, þá þarftu að borða vel og lyfta þungt. Ef þú vilt grennast og missa fitu á maganum, þá þarftu að borða minna og stunda alhliða líkamsrækt reglulega. Og nei, þú getur ekki ráðið því hvort þú missir fitu á handleggjunum, maganum eða mjöðmunum. Hver og einn líkami er ólíkur og þar af leiðandi er ekki til einhver ein töfralausn eða einhver ein töfraæfing. En þegar uppi er staðið þá er þetta samt bara svona einfalt. Hins vegar þá er kannski ekki eins einfalt að fara eftir þessu, og þess vegna eru svona margir sífellt að leita af einhverri töfralausn. En í guðanna bænum, ekki eyða peningunum ykkar í fæðubótaefni í von um að komast í draumaformið! Fjárfestu frekar í næringaríkum mat, líkamsræktarkorti, lokuðum námskeiðum, einkaþjálfun eða eitthvað í þeim dúr.


Ég er ekki að segja að ég taki aldrei inn nein fæðubótaefni og að mér finnist þau öll ömurleg. Alls ekki. Þau geta verið mjög góð VIÐBÓT þegar allt hitt er í lagi. En ef þú ert að borða bara eitthvað og einhverntíma, hreyfa þig 1-4 sinnum í viku af „miðlungs“ ákefð, þá í rauninni hefuru bara ekkert við fæðubótaefni að gera. Sorrý, en þannig er það bara.

xx

Rósa Soffía


 
 
 

Comments


Bloggfærslur
Nýlegar færslur
Leitarorð: 
Follow Us
  • Facebook Classic
  • Twitter Classic
  • Google Classic

© 2023 by PERSONAL TRAINER. Proudly created with Wix.com

bottom of page