Line the fine watches
- rosasoffiaharalds
- Mar 19, 2017
- 1 min read
Ég fékk á dögunum úr frá Line the fine watches og VÁ!, aðra eins fegurð á úri hef ég ekki séð áður. Ég valdi mér svart úr, því mér finnst það passa við allt og ég einfaldlega elska svartan lit. Úrið er með skífu úr ekta marmara, þannig að hvert úr er sérstakt, þar sem enginn marmari er nákvæmlega eins. Ólin á úrinu er svo úr ekta leðri. Það eru líka mjög falleg detail á úrinu, merkingin Line the Fine er bæði aftan á skífunni og á festingunni á ólinni. Úrið kemur svo í ótrúlega fallegri marmara öskju. Ég mun klárlega halda uppá öskjuna, því án gríns þá finnst mér hún næstum jafn falleg og úrið sjálft.



Úrin koma í þremur litum; svörtum, hvítu og bleiku. Allir litirnir eru mjög fallegir og það væri náttúrulega draumurinn að eiga alla þrjá litina. Úrin kosta 19.900 kr og eru fullkomin gjöf fyrir mömmu, vinkonu, kærustu, systur eða dóttur sem elskar íslenska stílhreina hönnun.


*Varan var fengin að gjöf, en umfjöllunin er mín eigin
xx
Rósa Soffía
Comentários