top of page

Föt frá Missguided

  • rosasoffiaharalds
  • Mar 1, 2017
  • 2 min read

Þið vitið öll að ég ELSKA að versla. Hvort sem er útí búð eða á netinu, í mínum huga er bæði jafn skemmtilegt! Ég er orðin mjög sjóuð í netverslun (innlent sem og erlent) því ég hef verslað fatnað, snyrtivörur, förðunarvörur, ræktarföt, ræktarskó, skartgripi, dót í ræktina, fæðubótaefni og margt fleira og get með sanni sagt að í 98% tilfella hef ég verið ánægð með það sem ég hef verslað mér. Mér finnst gaman að gera góð kaup og er ekki mikið í því að versla dýrar vörur. Þess vegna ákvað ég að spyrjast fyrir á snappinu mínu hvort það væri áhugi fyrir því að ég myndi sýna ykkur hvað ég er að versla. Í kjölfarið sýndi ég vörurnar sem ég var að fá frá Missguided og áhuginn leyndi sér ekki, svo ég ákvað að setja allar upplýsingarnar um hvað ég pantaði í þessa bloggfærslu. Þið megið alveg búist við því að svona færslur verði fleiri hér á blogginu mínu, svona í bland við ræktartipsin og æfingamyndböndin.

Þennan jakka varð ég bara að eignast!! Sjáið bara hvað hann er fallegur! 24 pund fyrir fóðraðan leðurjakka (að sjálfsögðu ekki ekta leður né ekta fóður samt) er náttúrulega grín verð! HÉR getið þið verslað þennan jakka.

Ég ákvað að kaupa þennan kjól bara af því að hann var svo hrikalega ódýr og ég er að elska svona hálsmál þessa dagana. Svo kom hann bara svona skemmtilega á óvart og er rosalega fallegur og kostaði bara 7 pund! Er þetta eitthvað grín? . HÉR getið þið verslað þennan kjól.


Þessa grænu peysu sá ég í mörgum litum á síðunni en ákvað að taka mér þennan lit, til að breyta aðeins til. Ég hefði mátt taka hana í Small (en ég tók Medium í öllu sem ég pantaði mér) og hún er aðeins of víðari og síðari á mér heldur en ég hefði viljað. Þannig að ég mun frekar nota hana sem kósý/cardio peysu, en ekki sem vinnupeysu, og fyrir 15 pund þá finnst mér það bara alveg í góðu lagi. HÉR getið þið verslað peysuna.


Þessa peysu keypti ég svo bæði á mig og Elínu Mist, enda kostaði hún ekki nema 15 pund. Ég tók stærð Medum (12) fyrir mig og XS (8) fyrir Elínu. Hún er úr ótrúlega þægilegu efni og er með svona víðar ermar, soldið í líkingu við ponsjó ermar. Ég notaði þessa peysu í vinnunni í gær og hún er ÆÐI! Hér getið þið verslað hana.


Það er ekki langt síðan við mæðgur skelltum í pöntun á NEW LOOK og ég mun örugglega sýna ykkur það sem við keyptum þar líka. Fylgist með.

xx

Rósa Soffía


 
 
 

Comments


Bloggfærslur
Nýlegar færslur
Leitarorð: 
Follow Us
  • Facebook Classic
  • Twitter Classic
  • Google Classic

© 2023 by PERSONAL TRAINER. Proudly created with Wix.com

bottom of page