Girnilegt kjúklingasalat
- rosasoffiaharalds
- Feb 15, 2017
- 1 min read
Við Elín Mist elskum að gera okkur ferskt og gott kjúklingasalat. Eins og flestir sem þekkja mig vita; þá nenni ég alls ekki að eyða miklum tíma í eldhúsinu, og í kvöld var engin undartekning á því. Það tók okkur ekki nema um 10 mínútur að undirbúa þetta salat. Þetta er það sem við notuðum:

Kjúklingastrimlar, ristaðar furuhnetur, kirsuberjatómatar, jarðaber, agúrku og salatblöndu.

Við berum svo salatið á borð í sitthvoru lagi, því ef heitur kjúklingur og heitar hnetur liggja of lengi í salatinu þá verður salatið ekki eins ferkst.

Þetta var skammturinn minn :)
Þetta salat heppnaðist ótrúlega vel hjá okkur og VÁ hvað manni líður vel eftir svona hollan og góðan kvöldmat. Mæli með að þið prófið að skella í eitt svona súper einfalt og ferskt salat.
xx
Rósa Soffía
コメント