top of page

Góð ráð til þess að byrja í ræktinni

  • rosasoffiaharalds
  • Feb 14, 2017
  • 3 min read

Fyrst og fremst finnst mér mikilvægt að við séum ekki að hugsa um hreyfingu til þess að refsa okkur fyrir óhollt mataræði eða af því að okkur finnst við feit og ætlum að hlaupa af okkur spikið. Hreyfingu ætti að nota sem tækifæri til að fá smá tíma útaf fyrir þig. Hlaða batteríin. Hlusta á tónlist. Hugsa. Hreyfing er í rauninni eitt það besta sem við getum gert fyrir okkur sjálf. Hvort sem við förum út að ganga, skokka, hjóla, förum í jóga, lyfta lóðum í ræktinni eða gerum æfingar á dýnu á stofugólfinu. Það er einnig hægt að skrá sig á allskonar námskeið eða í íþróttir, eins og til dæmis súlufitness, sund, dans, fótbolta, blak og margt fleira. Það er ekki til bara ein rétt leið. Hver og einn þarf að finna þá hreyfingu sem hann elskar og þá verður það engin kvöð að hreyfa sig. Ef þú hefur hingað til átt erfitt með að stunda hreyfingu því þér finnst óþægilegt að fara í ræktina, þá vil ég benda þér á það að það ÞARF ekki að fara í ræktina. En alveg sama hvað þú gerir, ekki sleppa allri hreyfingu. Hreyfingarleysi er eitt það versta sem við getum gert okkur. Lýðheilsustofnun mælir með a.m.k. 30 mín hreyfingu á hverjum degi og er það gott viðmið.


En ef þú, eins og svo margir aðrir, langar til að koma þér af stað í ræktinni á nýju ári þá er ég með nokkur góð ráð fyrir þig:

1. Ekki mæta bara og gera eitthvað. Flestar líkamsræktarstöðvar bjóða uppá fría tækjakennslu með þjálfara þar sem þú færð jafnvel æfingaprógram og þjálfarinn kennir þér aðeins á salinn. Þetta er líka mjög sniðugt að notfæra sér ef þú ert algjör byrjandi í ræktinni og finnst tilhugsunin við að ganga alein í salinn yfirþyrmandi.


2. Fáðu þér æfingaprógram. Hvort sem þú kaupir það af þjálfara eða býrð það til sjálf, þá er alltaf betra að vera að gera eitthvað markvisst í ræktinni. Annars er alltaf hætta á slugsi eða að fólk sé að gera sömu hlutina dag eftir dag og fær leið.


3. Farðu aðeins út fyrir þægindaramman, þar gerast hlutirnir. Til að fá þessa gleðitilfinningu sem fólk talar um í ræktinni, þá þarf að reyna á sig. Það gerist lítið ef þú gerir bara æfingar sem þér finnst þægilegar og tekur þyngdir sem þú getur lyft með léttum leik. Þú ert komin í ræktina til að fá hjartað til að slá örar, til að svitna og til að styrkja vöðvana, og til þess að það gerist þá þarf að reyna á sig. Stundum þarf að gretta sig og stynja aðeins til þess ;)

4. Vertu með góðan playlista. Ég nota sjálf spotify og á nokkra playlista þar sem ég skiptist á að nota eftir því hvernig skapi ég er í. Stundum er maður í stuði fyrir rokk, stundum fyrir 90´og þar fram eftir götunum. Góð tónlist gerir góða æfingu ennþá betri.


5. Vertu í þægilegum og fallegum æfingafötum. Þetta finnst mér vera mjög mikilvægt atriði. Það er svo gaman að mæta í ræktina í nýjum fötum og hvetur mann oft til að fara ef maður á falleg æfingaföt sem þarf að nota.


6. Ekki hugsa um hvort aðrir séu að horfa á þig! Lang flestir eru í ræktinni fyrir sjálfan sig og eru ekkert að spá í því hvað aðrir eru að gera. Nema þá kannski einna helst til að fá hugmyndir af æfingum eða dást að flottum æfingafötum. Ef einhverjir eru að mæta í ræktina til að dæma eða gera grín af öðrum, þá myndi ég frekar vorkenna því fólki heldur en að fá minnimáttarkennd gagnvart þeim. Mættu bara með þitt æfingaplan, með tónlistina í eyrunum og ekki hugsa um hitt fólkið sem er þarna.


7. Finndu þér æfingafélaga eða prófaðu hópatíma. Það getur hjálpað mikið að þurfa að mæta á ákveðnum tíma og að hafa félagsskap. Flestar stöðvar í dag bjóða uppá heilan helling af skemmtilegum og fjölbreyttum hópatímum sem hægt er að prófa.


8. Ef þú hefur kost á þá mæli ég líka eindregið með því að skrá sig í einka- eða hópþjálfun. Þannig læriru að æfa almennilega, færð aðstoð með mataræði og þú VERÐUR að mæta á æfingu og gera það sem þér er sagt. En ég skil vel að þetta sé ekki möguleiki sem allir hafa kost á og þá bendi ég aftur á atriðin 6 sem ég nefndi hér að ofan.


Ég vona að þessi atriði munu hjálpa einhverjum að koma sér af stað á nýju ári. Ekki ætla ykkur of mikið strax í byrjun. Það er gott að miða við að byrja á að æfa 2-3 sinnum í viku og fara í göngutúra eða skokk hina dagana á móti, þó ekki sé nema hálftími á dag.



xx

Rósa Soffía


 
 
 

Comments


Bloggfærslur
Nýlegar færslur
Leitarorð: 
Follow Us
  • Facebook Classic
  • Twitter Classic
  • Google Classic

© 2023 by PERSONAL TRAINER. Proudly created with Wix.com

bottom of page