Meistaramánuður
- rosasoffiaharalds
- Jan 29, 2017
- 1 min read
Meistaramánuður er fyrir alla!!! Skv heimasíðu meistaramánaðar þá er hann hugsaður til markmiðasetninga, þar sem þú getur skorað sjálfan þig á hólm og orðið besta útgáfan af sjálfum þér. Auðvitað ættum við öll að reyna það öllum stundum, en oft er gott að hafa svona "viðburði" til að koma sér af stað og/eða til að fínpússa aðeins markmiðin sin.
Ég ætla sjálf að taka þátt í meistaramánuðinum að þessu sinni og er búin að setja mér markmið.
Mín markmið fyrir meistaramánuðinn eru:
Ekki borða NEITT nammi
Borða reglulega
Elda kvöldmat á virkum dögum
Hlaupa a.m.k. 3x í viku
Fara eftir æfingaplani
Þrífa eitthvað heima á hverjum degi
Ég hef aldrei áður sett mér það markmið um að borða ekkert nammi í svona langan tíma. Þeir sem þekkja mig vita vel að ég er einn mesti nammigrís sem fyrir finnst. Áður en ég uppgötvaði líkamsrækt þá var nammi uppistaðan í mínu fæði, ef fæði mætti kalla. Ég bókstaflega lifið á nammi og kóki. Síðan þá hefur mér tekist ágætlega til við að halda namminu einungis á laugardögum. En þá hef ég líka oft keypt þyngd mína í nammi! Mig langaði til að setja mér eitthvað alveg nýtt markmið, sem væri langt langt út fyrir þægindarammann minn, og þá er ekkert eftir núna nema að standa við það!

Ég hvet ykkur eindregið til að taka þátt í meistaramánuðinum og kíkja á heimasíðuna þeirra hér.
xx
Rósa Soffía
Comentários