Tilboð á æfinga- og matarplönum!
- rosasoffiaharalds
- Jan 22, 2017
- 1 min read
Ég hef ákveðið að bjóða uppá tilboð á æfinga- og matarplönum það sem eftir er af Janúar og út Febrúar. Ástæðan fyrir því er einfaldlega sú að ég hef ekki tök á því að bæta við fleirum í Fjarþjálfunina hjá mér þar sem ég get ekki lofað fleirum góðri eftirfylgni. Ásamt fjarþjálfuninni er ég að sinna einkaþjálfun og bókhaldsvinnu fyrir nokkur fyrirtæki, svo það er nóg að gera hjá mér og ég vil geta veitt þeim sem eru hjá mér góða þjónustu og því vil ég ekki ofbóka á mig verkefnum. Ég hef því miður gert það einu sinni áður og þá endaði ég með að gleyma einum kúnna í fjarþjálfuninni og ruglast á því hver hafði sent mér póst og hver ekki og þess háttar. Það er náttúrulega bara alveg hræðilegt og ég lofaði mér því að ég myndi aldrei aftur bóka svona marga hjá mér í fjarþjálfun á sama tíma. En nóg með það, svona hljóðar tilboðið:
TILBOÐ FRÁ 23.JAN til 28.FEB
Stakt matarprógram: 2500 kr
Stakt æfingaprógram: 2500 kr
Bæði matar- og æfingaprógram: 4500 kr
*venjulega kostar stakt prógram hjá mér 3500 og saman því 7000 kr
** prógrömmin eru gerð með einn mánuð í huga

Til að panta tilboð þá sendið þið mér skilaboð hérna á síðunni undir "hafa samband".
xx
Rósa Soffía
Comments