top of page

Hátíðarkveðja

  • rosasoffiaharalds
  • Dec 28, 2016
  • 2 min read

Ég veit ekki með ykkur - en ég ætla mér stóra hluti á árinu 2017!

Ég er nú þegar búin að setja mér nokkur markmið og hlakka til að vinna að þeim. Ég ætla að ná að hlaupa 10 km á innan við klukkustund (metið mitt er 71 mín), ég ætla að ná að gera upphífingu án þess að nota teygju, eitthvað sem ég hef aldrei á ævi minni getað, og mig langar að léttast um 5 kg (það mun líka gera ofangreind markmið mín auðveldari fyrir vikið).


Ég ætla einnig að vinna enn betur í þessari fallegu heimasíðu minni, sem fagnar bráðum ársafmæli (og það mun ég gera með glæsilegum gjafaleik, bíðið bara!). Ég ætla að setja inn fleiri uppskriftir og fleiri æfingar. Einnig er ég með nokkrar persónulegar færslur í vinnslu sem mig langar til að þora að deila með ykkur. En það er nefnilega annað sem ég vil líka reyna að bæta mig í á komandi ári, og það er að opna mig aðeins meira!. Jú, ég deili nokkuð miklu úr mínu lífi með ykkur hér á blogginu, á snapchat og á instagram, en við getum nú öll verið sammála um að það er mjög sjaldan eitthvað persónulegt. Ég hef lengi verið mjög lokuð týpa og tjái mig næstum aldrei um tilfinningar, erfiðleika eða eitthvað þvíumlíkt, ekki einu sinni við vinkonur mínar eða mömmu mína. Það er eitthvað sem mig langar til að bæta úr. Múr sem ég þarf að brjóta. Til þess að geta orðið besta útgáfan af sjálfri mér.

En hér ætla ég að skilja við ykkur á þessu ári kæru lesendur.

Gleðilega hátið og ég hlakka til að vera meira með ykkur á komandi ári.

Takk fyrir að lesa :)

xx

Rósa Soffía


 
 
 

Comentarios


Bloggfærslur
Nýlegar færslur
Leitarorð: 
Follow Us
  • Facebook Classic
  • Twitter Classic
  • Google Classic

© 2023 by PERSONAL TRAINER. Proudly created with Wix.com

bottom of page