Uppáhalds í október
- rosasoffiaharalds
- Nov 5, 2016
- 1 min read
Jæja, þá er mánuður liðinn frá því að ég taldi upp fyrir ykkur mína uppáhalds hluti í september! Tíminn flýgur svoleiðis áfram! Þannig að núna ætla ég að segja ykkur frá mínum uppáhalds hlutum í október-mánuði! Það eru ekki margir hlutir að þessu sinni, en við vindum okkur bara í þetta 😊
Fyrst langar mig að nefna æfingateygjurnar frá Start sportswear á Íslandi. Það koma fjórar teygjur saman hver og ein með mismunandi styrkleika, svo það er hægt að nota þær á óteljandi vegu. Endilega skiljið eftir komment undir færsluna ef þið viljið fá smá sýnikennslu frá mér um notkun þeirra. Teygjurnar fást á www.n.is og kosta í kringum 2.900 kr - ef ég man rétt.

Teygjurnar koma í mjög þægilegum poka sem er svo einfalt að taka með sér á æfingu!

Næst ætla ég að segja ykkur frá combo sem ég hef oft talað um á snappinu mínu (rosasoffia), en það er brúnkukrems rútínan mín. Brúnkukremið sem ég er að nota og elska þessa dagana fékk ég að gjöf frá Deisymakeup.is. Þetta er svona létt froða sem er svo auðveld í ásetningu, ekkert klístruð og lyktin er ekki jafn yfirgnæfandi eins og í mörgum brúnkukremum. Eeeeen, það sem gerir ásetninguna milljón sinnum auðveldari er þessi fíni brúnku-hanski sem ég keypti mér á www.tarte.com. Hann er svo mjúkur að ég hef aldrei fundið annað eins, og ég hef prófað nokkra aðra hanska! Ég er án gríns í rúmar 10 mín að setja á mig óaðfinnanlega brúnku með þessu combo.

Síðast en ekki síst er það uppáhalds lagið mitt í Október, og ennþá í rauninni. Ég get hlustað á þetta lag endalaust!

Takk kærlega fyrir að lesa ❤️
xx
Rósa Soffía
Comentarios