Lífið á Akranesi
- rosasoffiaharalds
- Sep 9, 2016
- 2 min read
Jæja krakkar mínir, nú er oðið ansi langt síðan ég skrifaði eitthvað hérna inn. En ég er að sjálfsögðu bara búin að vera mjög upptekin vegna flutninganna og var bara fyrst að fá internet á nýja staðnum í morgun! Það gekk eitthvað illa að koma því upp, en hafðist sem betur fer að lokum. En, að máli málanna. Við mægður erum að elska lífið á Akranesi hingað til. Hér er svo friðsælt og notalegt að vera. Elín Mist byrjaði í 10.bekk í Grundaskóla og líkar alveg rosalega vel þar. Ég var alla mína skólagöngu í Grundaskóla og ber mjög hlýjar hugsanir til skólaára minna þar, svo ég er sérstaklega ánægð með að hún sé í gamla skólanum mínum.
Ég er byrjuð að kenna Buttlift, Core og einkaþjálfun í íþróttahúsinu og þetta fer allt saman mjög vel af stað. Ég er ennþá að keyra til Reykjavíkur 1-2x í viku til að vinna og er komin með tengingu í fartölvuna mína svo ég geti líka unnið aðeins heiman frá mér, svo ég er ekki bara að þjálfa. Ég mun örugglega halda þessu áfram svona í einhvern tíma a.m.k. og sjá hvernig það gengur. Við erum svona að mestu leyti búnar að koma okkur fyrir. Það er svona smá litlir hlutir og fínpúss (er það ekki orð annars?) sem er eftir. Það er eitthvað dót sem við eigum eftir að losa okkur við þar sem þessi íbúð er aðeins minni en sú sem við vorum í í bænum, hengja upp myndir og hillur, versla hirslur og eitthvað fleira þess háttar dóterí. Íbúðin og staðsetningin er samt svo best! Þetta er allt mjög kósý! Hérna eru nokkrar myndir frá siðustu dögum. Það er ennþá soldið drasl hjá okkur því eins og ég segi þá er ekki allt komið á sinn stað ennþá.

Fyrsta alvöru máltíðin í nýja húsinu :)

Setti upp smá myndavegg í herberginu mínu

Elska elska elska að hafa svona stórt horn baðkar!!!

Keypti svona flott dagatal af Aliexpress sem prýðir eldhúsvegginn okkar!

Motiavation myndaveggur í herberginu mínu
Núna þegar ég er loksins komin með netið þá ætla ég að vera dugleg að henda inn uppskriftum, æfingum og fleiru skemmtilegu fyrir ykkur, hérna á síðuna mína, grammið og snappið :) Stay tuned
xx
Rósa Soffía
Snapchat: rosasoffia
Comments