Námskeið á Akranesi
- rosasoffiaharalds
- Aug 9, 2016
- 1 min read
Þá er ég búin að fá að vita hvaða tíma ég fékk úthlutaða í þreksölunum á Akranesi og er því búin að setja saman stundatöfluna mína fyrir september. Til að byrja með ætla ég að bjóða uppá 2 námskeið, Buttlift og Girl Power. Einnig verð ég með einu sinni í viku Core tíma, og ef hann gengur vel mun ég bæta við tímum þar. Hér kemur smá útlistun á því út á hvað tímarnir snúa: Buttlift: 45 mínútna tímar þar sem aðaláherslan er lögð á rass og læri. Æfingar eru gerðar á dýnum, með stangir, bolta, handlóð, plötur og eigin líkamsþyngd, og þær ættu að henta öllum. Girl Power: 60 mínútna tímar þar sem ég legg mikla áherslu á lyftingar. Æfingarnar verða fjölbreyttar og hver og ein getur unnið á sínum hraða. Fyrir stelpur sem langar að lyfta og vilja fá leiðsögn og krefjandi æfingar í góðum félagsskap.
Core: 30 mínútna tímar þar sem eingöngu er unnið með miðsvæði líkamans. Þegar ég segi "með aðhaldi" þá þýðir það: mæling í upphafi og lok námskeiðs, matarhugmyndir og æfingar til að gera sjálf á milli tíma.



Sjáumst á Skaganum
xx
Rósa
Comentários