Flutningar!
- rosasoffiaharalds
- Aug 4, 2016
- 2 min read
Það eru miklar breytingar framundan hjá okkur mæðgunum! Við Elín Mist erum að flytja á æskuslóðir mínar í lok ágúst, nánar tiltekið á Akranes! Við erum búnar að fá leigða fallega 3ja herbergja íbúð á besta stað í bænum, nálægt Langasandi, grunnskólanum og ræktinni! Við erum svo spenntar fyrir þessu, að fá loksins að búa nálægt fjölskyldu og vinum eftir 8 ára "útlegð" í Kópavoginum ;) Það verður samt líka erfitt að kveðja vinina okkar hér, íbúðina sem við erum búnar að búa í og Reebok! En ég er þeirrar skoðunar að ef manni líður ekki vel á þeim stað sem maður er á í lífinu, og maður veit hvað það er sem manni langar virkilega til að gera, þá verður maður að láta reyna á það. Það getur verið ógnvænlegt og erfitt, en það getur líka orðið STÓRKOSTLEGT. Maður veit aldrei, ef maður reynir ekki. Mig langar ekki til að hugsa "hvað ef?" það sem eftir er.

Síðasta 1 og hálfa árið er ég búin að leggja mikla vinnu í að byggja upp Fjarþjálfun og Einkaþjálfun rosafitness.is. Hélt úti virku snapchati, instagrammi, bloggi og öllu þessu lengi með fáa fylgjendur. En alltaf vatt þetta svo uppá sig og fór að verða bara nokkuð stórt og gott batterí hjá mér. Það borgaði sig á endanum hvað ég lagði mikla vinnu í þetta. Ég er farin að þurfa að vísa fólki frá í einkaþjálfun og stundum í fjarþjálfuninni líka því ég hef oft ekki undan! Á meðan ég gerði allt þetta hef ég verið að vinna 100% vinnu á skrifstofunni og á tímabili 25% vinnu í verslun líka. Í dag er ég að fá daglega fyrirspurnir um þjálfun og á í fullu fangi með að halda utan um þetta á þann hátt sem ég vildi óska að ég gæti. Þannig að ég ákvað að láta drauminn minn rætast! Ég sagði upp vinnunni og íbúðinni, er að flytja nær fjölskyldunni og mun svo gefa mig 100% í þjálfunina! Þið trúið því ekki hvað ég er stolt af sjálfri mér og spennt fyrir að takast á við þetta verkefni.

Á næstu dögum kemur í ljós hvað og hvort ég verði að þjálfa eitthvað í Reebok áfram, hvaða námskeið og tímar verða í boði hjá mér á Akranesi og allt saman. Endilega fylgist með :) xx
Rósa
snapchat: rosasoffia
コメント