top of page

Kanarí

  • rosasoffiaharalds
  • Jul 18, 2016
  • 2 min read

Verið öll sæl og blessuð, ég er mætt aftur til starfa eftir 2ja vikna sumarfrí. Ég fór í viku til Kanarí ásamt vinkonu minni og kom til baka alveg endurnærð og tilbúin í ný og skemmtileg verkefni. Framundan eru nokkrar breytingar á uppsetningunni á þjálfuninni hjá mér og mun ég birta tilkynningu hér með útskýringum á breytingunum og nýjungunum þegar þar að kemur.

Kanarí var algjört æði! Við vorum á hóteli sem heitir Ifa Buentuvera á Ensku ströndinni (Playa de Inglés), og þetta er mjög stórt og flott hótel, með tveimur sundlaugagörðum, verslunum og veitingastöðum. Við fengum herbergi uppá sjöundu hæð með útsýni yfir annan sundlaugagarðinn. Hitinn var alltaf í kringum 24-30 gráður og það var svo yndislegt, ég elska nefnilega hitann. Ég hef alltaf sagt að ég hafi fæðst í röngu landi :D Húðin mín er samt ekki endilega sammála mér, því ég roðna auðveldlega í sólinni og notaði sólarvörn 50 allan tímann, en varð samt stundum rauð. Við gerðum margt skemmtilegt; fórum meðal annars tvisvar í höfuðborgina Las Palmas til að versla, Aqualand, Holiday World og á ströndina, svo eitthvað sé nefnt. Við vorum svo heppnar að það var frekar vel útbúin rækt á hótelinu okkar svo við gátum æft alla dagana og gerðum það yfirleitt um miðjan daginn á meðan sólin var sem allra sterkust. Við sáum mjög fljótt eftir því að hafa bara pantað vikuferð, því okkur langaði til að vera lengur. Næst verður klárlega pantað 2ja vikna ferð!!

Það nennir enginn að lesa langa ferðasögu svo að ég birti bara frekar nokkrar skemmtilegar myndir frá ferðinni í staðinn.

Myndirnar eru ekki í neinni sérstakri röð.

Vonandi eruð þið að njóta sumarsins ykkar.

xx

Rósa


 
 
 

Comments


Bloggfærslur
Nýlegar færslur
Leitarorð: 
Follow Us
  • Facebook Classic
  • Twitter Classic
  • Google Classic

© 2023 by PERSONAL TRAINER. Proudly created with Wix.com

bottom of page