top of page

Eggjamúffur

  • rosasoffiaharalds
  • Jun 21, 2016
  • 1 min read

Í gærkveldi bjó ég til svokallaðar eggjamúffur og þar sem þær vöktu svo gífurlega mikla lukku á snappinu mínu, þá ætla ég að setja uppskriftina hérna inn skref fyrir skref. Þetta er eins einfalt og það getur orðið og miðað við þessa uppskrift er hver múffa ekki nema um 40 hitaeiningar. En svo er alltaf hægt að breyta innihaldinu og aðlaga uppskriftina þá eftir því. Það sem þarf:

  • Sílíkon múffu form fyrir 12 múffur

  • PAM-sprey

  • 2 heil egg

  • 8 eggjahvítur

  • Paprika

  • Blómkál

  • 9 sneiðar óreykt kjúklingaálegg

  • Krydd að eigin vali (ég notaði salt, pipar, karrý og laukduft)

Aðferð:

Skref 1: Hita ofninn í 160 gráður

Skref 2: Spreyja PAM-sprey í formin (fæst t.d í Bónus)

Skref 3: Brjóta eggin og hvíturnar í skál og viska saman með gaffli

Skref 4: Skera niður kjúklingaskinkuna og hræra við

Skref 5: Skera niður papriku og hræra við

Skref 6: Skera niður blómkál og hræra við

Skref 7: Krydda að vild og hræra svo öllu vel saman

Skref 8: Skammta blöndunni í formin með skeið eða ausu

Skref 9: Setja í ofninn í sirka 20-25 mínútur, eða þangað til að eggin eru tilbúin

Skref 10: Njóta

Ég er alveg viss um að það er mjög gott að setja sætar kartöflur, lauk og fleira góðgæti í þetta og ég mun klárlega prófa mig áfram með hin ýmsu hráefni. Þetta er mjög skemmtileg tilbreyting til að koma meira próteini inní fæðuna sína.


 
 
 

Comments


Bloggfærslur
Nýlegar færslur
Leitarorð: 
Follow Us
  • Facebook Classic
  • Twitter Classic
  • Google Classic

© 2023 by PERSONAL TRAINER. Proudly created with Wix.com

bottom of page