Gjafaleikur
- rosasoffiaharalds
- Apr 24, 2016
- 2 min read
Uppfært Dregið var úr leiknum þann 2.maí og var það hún Helga Rut Jóhannesdóttir sem var svo heppin að hafa vinninginn. Hér er hún alsæl með allan varninginn. Ég óska henni innilega til hamingju með þetta enn og aftur :)

__________________________________________________________________________________________
Ég opnaði þessa síðu í byrjun ársins og í tilefni þess hversu vel hún hefur gengið þá langar mig að efna til gjafaleiks.
Ég er svo innilega þakklát fyrir hverja einustu manneskju sem skráir sig hjá mér í einkaþjálfun, fjarþjálfun, mælingu eða kaupir hjá mér stök prógrömm. Þegar ég sé einhvern mæla með mér á facebook eða þegar ég fæ hrós fyrir fróðlegt, hvetjandi og skemmtilegt snapchat þá verð ég alltaf svo glöð og þakklát. Að þjálfa og getað miðlað reynslu minni áfram er eitt það allra skemmtilegasta sem ég geri. Þess vegna langar mig að gefa til baka og þakka fyrir frábærar viðtökur!
Þetta er ekki hefðbundinn gjafaleikur að því leytinu til að þú þarft ekki að læka né deila til að geta unnið. Það eina sem þú þarft að gera er að kommenta hérna undir og segja mér hvort þú hafir einhverntíma verið í fjarþjálfun, hvernig það gekk og hvað þér finnst vera mikilvægt að fjarþjálfari geri til þess að mótiveita kúnnana sína. Ég mun svo taka öll svörin til mín til þess að geta boðið uppá enn betri fjarþjálfun í framtíðinni.
Vinningshafi verður svo valinn af handahófi, ekki eftir besta svarinu. Endilega kommentið fullt nafn svo að það auðveldi mér vinnuna að tilkynna réttan sigurvegara.
Ef þið viljið þá megið þið addað mér á þessum miðlum:
Snapchat og intagram: rosasoffia
Facebook: Fjarþjálfun Rósu
Þá er komið að því að telja upp vinningana, en þeir eru ekki af verri endanum!
Í vinning er:
Mánuður hjá Fjarþjálfun Rósu
Mæling í upphafi og lok mánaðarins í fjarþjálfuninni
Sci-mx æfingabrúsa frá Líkama & Lífsstíl
Sci-mx Amino intra ripped core æfingadrykk – frá Líkama & Lífsstíl
Sci-mx prótein bar - frá Líkama & Lífsstíl
Húðvörur frá Eucerine
Húðvörur frá Nivea
OPI naglalakk
Instant brúnkukrem frá St Tropez





Vinningshafi verður tilkynntur sunnudaginn 1.maí
Gangi ykkur vel
xx
Rósa
Comentarios