Nýtt hár!
- rosasoffiaharalds
- Apr 6, 2016
- 2 min read
Síðastliðnu helgi fór ég í klippingu og litun á hárgreiðslustofu, en það er hlutur sem ég leyfi mér alls ekki nógu oft! Yfirleitt er ég að lita hárið á mér sjálf heima fyrir með lit úr Hagkaup, en það hef ég þurft að gera næstum því mánaðarlega, þar sem ég er með ofur hárvöxt og er farin að grána töluvert í ofanálag. En nú langaði mig í aðeins róttækari breytingar og ég lagði ekki í þær sjálf, svo ég ákvað að panta mér tíma á hárgreiðslustofunni Traffic, sem staðsett er í Holtagörðum. Hún Auður tók á móti mér þar, en hún er ekki bara mjög fær hárgreiðslukona, heldur líka alveg svakalega hress og skemmtileg. Hún byrjaði á að litahreinsa á mér hárið, þar sem það var orðið næstum svart af búðalitum!

Hárið eftir litahreinsunina
Svo blandaði hún saman einhverjum dökkbrúnum lit, rauðum og fjólubláum, því mig langaði í alla þessa tóna í hárið á mér! Og útkoman var bara ansi skemmtileg, það er mikil hreyfing á litnum og blærinn mismunandi eftir því hvar maður horfir á hárið og hvernig birtan er, en það er einmitt þannig sem ég vildi hafa það. Svo klippti hún bara aðeins neðan af því, en það var lítið um slit svo það þurfti ekki að taka mikið af því. Ég ætla mér að safna hári niður á rass svo ég fór ekki í neinar breytingar á síddinni.

Útkoman! Svo slétt og fallegt :)

Hérna sést aðeins betur í rauð-fjólubláa blæinn sem er yfir hárinu :)
En mig langaði samt að gera eitthvað aðeins meira! Og einhvernveginn varð það úr að við ákváðum bara þarna í skyndi að það væri mega töff að raka smá aftan á og gera flott mynstur og hafa litinn töluvert fjólublárri þar. Rakvél hefur aldrei komið nálægt höfðinu á mér, svo þetta var ansi stórt skref fyrir mig, þar sem ég held mig alltaf vel inní þægindarammanum þegar kemur að hárinu mínu. En mikið sem ég er ánægð með útkomuna, og að hafa látið vaða.

Ég gæti ekki mælt meira með henni Auði á Traffic og held ég sé loksins búin að finna hárgreiðsludömu sem ég get látið alveg sjá um hárið mitt héðan í frá. Hingað til hefur mér fundist þetta peningaeyðsla, því ég hef aldrei verið neitt sérstaklega ánægð eða ekki fundist þær hafa gert eitthvað, sem ég gæti ekki gert sjálf. Svo sakar ekki að Reebok meðlimir fá 10% afslátt og stofan er bara við hliðinná ræktinni í Holtagörðunum. Hérna getið þið skoðað síðuna þeirra á Facebook.
xx
Rósa
(Ath þessi færsla er ekki kostuð- ég greiddi fyrir þjónustuna úr eigin vasa)
Comments