15 mínútur af frægð!
- Rósa Soffía
- Apr 3, 2016
- 1 min read
Í helgarblaði DV er að finna viðtal við 'yours truly'. Ég fékk skilaboð á facebook einn daginn frá ungri stelpu sem er blaðamaður á DV (og hefur verið að fylgja mér á snapchat). Hún vildi fá að spjalla við mig um það hvernig ég fór frá því að vera óheilbrigð stelpa sem reykti og drakk kók allan daginn - yfir í það að vera einkaþjálfari og elska heilbrigt líferni, en ég hafði einmitt þá nýverið talað um þetta á snappinu mínu. Mér fannst hugmyndin mjög skemmtileg og hugsaði með mér að þetta væri nú verðugt efni til að fjalla um, svo ég sló til. Hún hringdi í mig og við spjölluðum um þetta allt saman í einhvern tíma og ljósmyndari kom og tók af mér myndir. Hérna getið þið lesið viðtalið við mig:

xx
Rósa Soffía
Comments