top of page

Partý ársins!

  • Rósa Soffía
  • Mar 23, 2016
  • 2 min read

Um helgina fór ég í partý sem haldið var fyrir stelpur sem nota einhverskonar samfélagsmiðla til að koma sér á framfæri. Þarna voru staddar um 50 stelpur sem allar eru að blogga, snappa, instagramma, skrifa pistla á vefmiðla eða nota aðra samfélagsmiðla að staðaldri. Sú sem fékk hugmyndina að þessu partý heitir Hrefna Líf og hefur sjálf verið að halda úti vinsælu snapchati, og fékk hún Fjólu Heiðdal, förðunarfræðing með sér í lið til að skipuleggja þetta partý. Þetta var ekkert leynilegt partý eða keppni um vinsældir, það gátu allir gefið sig á tal við þær ef þeim fannst þær eiga heima í þessu partýji. Þú gast bent á stelpur sem þú vissir af sem þér fannst eiga heima þarna. Auðvitað gátu þær tvær ekki vitað um allar stelpur á Íslandi sem blogga eða snappa, það gefur augaleið. En ég var svo ánægð að fá að vera með í þessu og fá að hitta allar þessar frábæru stelpur sem ég hef fylgst með svo lengi á snapchat og á bloggsíðunum þeirra. Þó ég hafi nú reyndar verið of feimin til að heilsa mörgum þeirra, sérstaklega þegar ég vissi að meira en helmingurinn af þeim höfðu ekki hugmynd um hver ég væri haha

Stal þessari mynd af snappinu hjá Hrefnu Líf

Hér er ég ásamt Línu tískubloggara á linethefine.com og Sylvíu sem er með Bleikt.is

En þetta var frábært kvöld og ég er svo þakklát fyrir að hafa fengið að vera með. Það fór enginn tómhentur heim frá þessu kvöldi, því stöllurnar Fjóla og Hrefna höfðu safnað í ÞRJÁ gjafapoka á mann, snyrtivörum frá nokkrum heildverslunum. Það voru mjög veglegar gjafir frá Nivea, Eucerin, Smashbox, Nyx, Rimmel, Arteco og fleirum.

Nú bíð ég bara spennt eftir næsta partýi

Takk kærlega fyrir mig!

xx

Rósa


 
 
 

Comments


Bloggfærslur
Nýlegar færslur
Leitarorð: 
Follow Us
  • Facebook Classic
  • Twitter Classic
  • Google Classic

© 2023 by PERSONAL TRAINER. Proudly created with Wix.com

bottom of page