top of page

Nokkur ráð við ræktarleiða

  • Rósa Soffía
  • Mar 16, 2016
  • 3 min read

Það ganga allir í gegnum tímabil þar sem allur metnaður fyrir ræktinni virðist gufa upp, jafnvel þó að ræktin sé eitt af aðaláhugamálunum, eins og er í mínu tilfelli. Það er fullkomlega eðlilegt að ganga í gegnum svona tímabil, en stundum er það einfaldlega merki um að maður þurfi að hvíla sig og slaka örlítið á. Ef þér finnst líklegt að það eigi við þig, þá mæli ég með því að taka 2 daga í hvíld frá ræktinni, dekra smá við sig með baði, nuddi, heitum potti, maska eða öðru kósý-stöffi og jafnvel leyfa sér eitthvað smá trít matarlega séð, en þó alls ekki það mikið að það skemmi allan árangur! Ef þú ert búin að prófa hvíldina en það kemur þér samt ekki í gírinn til að fara aftur af stað, þá mæli ég með að kíkja á eftirfarandi lista og athuga hvort eitthvað á honum gæti hentað þér.

1. Búa til nýjan playlista. Ég nota sjálf Spotify og er með nokkra playlista í gangi þar og nota svo mismunandi playlista eftir því hvernig skapi ég er í. Stundum langar mig bara að vera með derhúfuna niðri og rokktónlistina í botni og taka hrikalega á því. Stundum langar mig til að taka smá cardio og hlusta á 90´s músíkina og þykjustu-syngja með. Ég uppfæri playlistana mína reglulega, hendi út lögum sem ég er farin að “skippa” yfir og bæti við nýjum lögum og þess háttar. Svo þegar ég er komin með algjör ógeð þá bara bý ég til nýjan playlista.

2. Kaupa sér ný ræktarföt. Það virkar alltaf! Aldrei eins gaman að fara á æfingu eins og í spánýju dressi.

3.Fá sér nýtt og gott æfingaprógram! Hvort sem þú finnur það online eða kaupir af þjálfara, þá er alltaf svo mikið skemmtilegra að taka á því ef maður er að gera eitthvað markvisst. Það er lítið varið í það til lengdar að mæta í salinn og gera “eitthvað”.

4. Hafa skýr og raunhæf markmið. Það er gott að setja sér markmið, bæði langtíma- og skammtíma markmið. Langtíma markmið væri kannski að losna við ákveðinn kílóafjölda, ná ákveðnu maxi í hnébeygju, hætta að hafa vigtina á heilanum, geta gert 20 armbeygjur á tánnum, komast í gallabuxur í stærð 28 eða eitthvað álíka. En svo er gott að setja niður mörg lítil markmið sem munu hjálpa þér að komast að langtíma markmiðinu. Gott er að setja sér vikuleg markmið, og þá geta þau til dæmis verið einhvernveginn svona: ekki stíga á vigtina nema fyrr á laugardaginn, fara á 4 æfingar í vikunni, gera 5 armbeygjur á dag og svo framvegis. Ef það er mjög langt í langtíma markmiðið þá getur verið erfitt að einblína á það, en þessi litlu markmið geta haldið manni við efnið á leiðinni.

5. Finna sér æfingafélaga. Hvort sem það er foreldri, vinkona, vinur, dóttir, sonur, maki eða hver sem er. Það er oft mikið skemmtilegra að æfa í félagsskap, sérstaklega ef þú ert óörugg í salnum. Sjálf auglýsti ég einu sinni eftir æfingafélaga í facebook grúppu sem ég er í (motivation stelpur) og þar fann ég æfingafélaga sem ég æfði með í rúmt ár!

6. Prófa nýja hópatíma. Flestar líkamsræktarstöðvar í dag bjóða uppá mjög gott úrval af opnum hópatímum og það er um að gera að notfæra sér það. Ef þú ert komin með leið á lyftingarsalnum, prófaðu þá Hot body eða Spinning. Ef þú ert komin með leið á Hot yoga, prófaðu þá Tabata…og svo framvegis. Þú gætir fundið einhvern nýjan tíma sem þér finnst svo skemmtilegur að þér hlakkar bara til að mæta í ræktina.

7. Fáðu þér einkaþjálfara. Ef þú ert byrjandi myndi ég alltaf mæla hiklaust með því. Einkaþjálfari kennir þér að æfa, kennir þér á salinn, fer yfir mataræðið með þér og sér um mælingar til að fylgjast með árangri. Einkaþjálfari getur líka hjálpað þér í gegnum ræktarleiða þó þú sért alls enginn byrjandi. Þá færðu að gera nýjar æfingar, hann fylgist með þér, mælir þig, hvetur þig áfram og getur komið með nýjar/aðrar aðferðir sem þú hefur ekki prófað áður. Það er enginn einkaþjálfari eins og því um að gera að skoða vel á heimasíðum líkamsræktarstöðvanna og finna þann sem þú heldur að henti þér best.

Vonandi gagnast þessi upptaling hjá mér einhverjum til að komast yfir smá leiða í ræktinni. Hreyfing á að vera skemmtileg og krefjandi og við gerum þetta fyrir okkur sjálf, engan annan.

xx

Rósa Soffía


 
 
 

Comments


Bloggfærslur
Nýlegar færslur
Leitarorð: 
Follow Us
  • Facebook Classic
  • Twitter Classic
  • Google Classic

© 2023 by PERSONAL TRAINER. Proudly created with Wix.com

bottom of page