top of page

Ekki láta plata þig!

  • Rósa Soffía
  • Feb 21, 2016
  • 2 min read

Stundum verður maður svo pirraður við að lesa og horfa á auglýsingar sem er eingöngu ætlaðar til þess að láta fólk hlaupa út í búð og kaupa vöruna, því það langar ekkert heitar en að missa nokkur kíló.

Ekki láta plata ykkur þó að vara sé auglýst sem “brennsluvara”. Maður sér þetta allt allt allt allt of oft. Fitubrennslugel, brennslutöflur, brennslubelti og þar fram eftir götunum. Þú getur ekki tekið neina töflu, borið á þig neitt krem né sett á þig neitt belti og KABÚMM fitan er farin. Ef þetta virkaði þannig, þá værum við öll fitulaus, eða svo til. Þú getur ekki heldur valið hvar þú vilt brenna fitunni. Eins og til dæmis með því að bera eitthvað krem á rassinn á þér, því þú vilt brenna fitu þar.

Fitubrennsla verður þegar þú borðar færri hitaeiningar á dag en þú brennir.

Það eru öll geimvísindin krakkar mínir.

En ég er alls ekki að segja að þú eigir ekki að kaupa neinar vörur sem eru auglýstar með svona villandi hætti. Þær geta margar verið góðar og haft ágætis notagildi, en bara alls ekki trúa því þær séu að láta líkamann þinn brenna fitu. Brennslutöflur innihalda margar koffín, grænt te, guarana og fleiri örvandi og vatnslosandi efni sem og geta því gefið manni aukna orku, sem er náttúrulega bara af hinu góða, ef þú ert heilbrigður einstaklingur það er að segja. Gel og belti auka hitamyndun á því svæði sem þau eru sett á og þar af leiðandi svitnar maður meira á þeim svæðum, sem er þá vatnslosandi og getur verið gott til þess að losa um óhreinindi í húðinni og þess háttar. Ekki halda að svitinn sem lekur eftir notkun sé fitan ykkar að brenna. Nei, þetta er bara sviti. Og sviti er ekki mælikvarði á það hversu mikilli fitu þú ert að brenna heldur. Við svitnum mismikið og það hefur ekkert með fitu að gera.

Eftirfarandi texti er tekinn af Vísindavefnum:

Fjölmargar kenningar eru til um hvernig best sé að brenna fitu en aðalatriðið er að hitaeiningafjöldinn sé ekki of mikill. Passa má upp á það með hollu mataræði og hreyfingu. Ólíkt því sem sumir halda er ekki hægt að gera sérstakar æfingar til þess að brenna fitu af maganum (eða öðrum svæðum) þar sem fitubrennsla er ekki svæðisbundin.

Amen

xx

Rósa


 
 
 

Comments


Bloggfærslur
Nýlegar færslur
Leitarorð: 
Follow Us
  • Facebook Classic
  • Twitter Classic
  • Google Classic

© 2023 by PERSONAL TRAINER. Proudly created with Wix.com

bottom of page