Ræktar-herbergi
- Rósa Soffía
- Feb 17, 2016
- 3 min read
Ég fæ oft allskyns hugdettur, misgóðar þó, og ég er misjafnlega dugleg við að hrinda þeim í framkvæmd. Um daginn fékk ég þá snilldar hugmynd að breyta geymslu-herberginu mínu, sem er frammi á gangi í stigaganginum hjá mér, í ræktar-herbergi. Vandamálið við þessa hugmynd var það að herbergið er yfirfullt af allskyns drasli. Já, ég sagði drasli. Í þetta herbergi hef ég sett gjörsamlega allt sem ég nennti ekki að fara með niður í geymslu, enda bý ég á 3ju hæð í fjölbýlishúsi og geymslan er staðsett niðrí kjallara. Ég er búin að búa í þónokkur ár í þessari íbúð og því ansi margt búið að safnast fyrir í þessu blessaða herbergi. Þar má meðal annars nefna 3 bilaðar þvottavélar, bilaður ísskápur, 3 geymsluhillur, eldgamalt og sjúskað heimasmíðað barbie-hús, kassar af jólaskrauti, dósir til endurvinnslu, fatapokar sem ég er alltaf á leiðinni með til Rauða Krossins, leikföng sem dóttirin er hætt að nota, verkfæri og beisiklí allt sem hefur bilað á heimilinu síðastliðin 5 ár eða svo. Þannig að ég hófst handa við að ferja draslið úr herberginu niður í aksjúllí geymsluna, sem stóð hálf tóm. Það tók næstum heila kvöldstund og óteljandi margar ferðir. Ég náði að fara með flest allt, nema stóru þungu hlutina að sjálfsögðu. Því tók ég mig til og auglýsti þvottavélarnar gefins á bland.is og kom þá maður með trillu meðferðis og hirti þær allar. Verði honum að góðu. Þannig að núna á ég bara ísskápinn, barbie-húsið og geymsluhillurnar eftir. Vinkona mín er búin að bjóðast til að aðstoða mig og redda bíl til verksins, svo það þarf þá einungis að finna tíma. Sem er nú reyndar hægara sagt en gert, því það þarf að vera opið á Sorpu þar sem hlutirnir munu fara beinustu leið þangað.
Nú, svo þegar herbergið verður orðið tómt, þá þarf heldur betur að þrífa það. Svo langar mig til að setja upp spegla, hillur og jafnvel svona "motivational" límmiða á veggina og gera þetta svolítið lekkert.


Herbergið er reyndar frekar lítið og það mun ekki komast mikið fyrir af dóti í því. En það sem ég hef aðallega hugsað mér að nota ræktar-herbergið í er að taka upp og setja saman 15-30 mínútna interval æfingar, taka upp æfinga- og kennslu myndbönd og jú kannski mun ég líka púla sjálf í því af og til, mér til gamans. Mig hefur alltaf langað til að geta tekið upp mínar eigin æfingar og deilt þeim, þá hér, á snapchat, pinterest, instagram og/eða youtube. Þá gæti ég til dæmis gert æfingar í þessum dúr, og sett upp með myndum og/eða myndböndum: (ath þessi mynd/æfing er ekki eftir mig, ég fann hana á netinu til að nota sem sýnisdæmi hér)

Ég á slatta af áhöldum til fyrir herbergið, svo ég býst ekki við að þurfa að splæsa í mikið af þeim.
Það sem ég á m.a. er:
- skíðavél
- bekkpressubekkur með stöng
- handlóð
- lóðaplötur af ýmsum stærðum
- jóga dýna
- bandvefslosunar-rúlla
- ökklalóð
- teygjur af ýmsum gerðum
- sippuband
Ég gæti meira að segja trúað því að það yrði of þröngt í herberginu fyrir bæði skíðatækið og bekkinn, svo það gæti verið að ég láti bekkinn fara (en skilji stöngina eftir samt sem áður). Enda er bekkurinn vel kominn til ára sinna og alls ekki fallegur á að líta. En þetta kemur allt saman betur í ljós þegar ég sé hversu rúmgott (eða rúmlítið) herbergið mun reynast í raun og veru. Ég vona að ég komist í að klára þetta verkefni sem fyrst því ég er mjög spennt fyrir útkomunni og að geta hafist handa við æfinga-gerð. Endilega fylgist með á snapchat (notendanafn: rosasoffia)
xx
Rósa Soffía
コメント