top of page

Uppskriftir

Tortillu-lasagne

Það sem þarf:

  • Nautahakk 

  • Tortilla vefja

  • Salsa sósa

  • Fajitas krydd

  • Rifinn ostur

  • Meðlæti að eigin vali
     

*Magn fer eftir því hvað þú ert að elda fyrir marga

Þú byrjar á að hita ofninn í 180 gráður. Svo er hakkið steikt á pönnu og blandar salsa sósu (ca 2-3 matskeiðum) og 1 pakka af Fajitas kryddi saman við. Þegar hakkið er orðið brúnt þá er helmingurinn af því settur í eldfast mót,  tortilla vefju raðað ofaná, eins og þú myndir raða lasagne plötum, og þar á eftir er hinn helminginn af hakkinu settur yfir. Þar á eftir fer svo rifin ostur yfir allt. Að lokum er rétturinn settur í ofninn í u.þ.b. 15-20 mínútur og á meðan er gott að nýta tímann í að undirbúa meðlæti. Að þessu sinni var ég með ferskt salat og cous cous á boðstólnum. 

Blómkáls-pizza Rósu

 

Botn

  • 2 egg

  • 2 bollar Mozzarella rifinn ostur

  • 2 bollar rifið blómkál

 

Þetta hræri ég saman með skeið eða gaffli og hnoða svo aðeins saman með höndunum. Því næst dreifi ég úr "deiginu" á bökunarpappír í ofnskúffu og flet úr deiginu með höndunum og bý þannig til hringlaga pizzabotn. Það er betra að hafa þetta soldið þunnt. Svo fer deið í ofninn á 180 gráður í 15-20 mín. 

 

Á meðan botninn er að bakast er hægt að dunda sér við að skera niður áleggið. Ég mæli með kjúklingaskinku, lauk, piparosti, papriku, svörtum pipar og chilli, og smá rifinn ost yfir auðvitað. Í stað pizzasósu getur maður notað salsa sósu, en það er líka í góðu lagi að hafa pizzasósu. 

Þegar botninn er tilbúinn er gott að láta hann kólna aðeins áður en álegginu er raðað ofan á. Þegar áleggið er komið á er pizzan sett aftur inní ofninn í sirka 7-10 mínútur. 

 

Verði ykkur að góðu! 

 

Prótein-pönnsur Rósu

 

  • 1 dl eggjahvítur

  • 1 scoop GRS9 (eða casein) prótein 

  • Nokkrir dropar vanillu stevia

  • 1/2 dl haframjöl

  • smá kanill

 

Svo hræri ég þetta allt saman með handþeytara og nota ausu til að

búa til nokkrar litlar pönnukökur á pönnunni. Þetta ætti að duga í 2-3 máltíðir, eftir því hvort þú ert að nota þetta sem millimál eða morgunmat og eftir því hversu svöng þú ert :) 

Ég nota PAM-sprey á pönnuna til að pönnsurnar festist ekki við. 

Gott topping á pönnsurnar er meðal annars hnetusmjör, próteinkrem eða smávegis af agave sýrópi, jarðaber og /eða banani.

 

Próteinkrem:

1 msk af whey próteini með súkkulaðibragði

smá vatn blandað útí og hrært saman þangað til er orðið eins og krem

 

Ég nota Sci-mx GRS9 vanilluprótein í pönnsurnar

og Sci-mx whey isolate súkkulaði prótein í kremið 

 

Njótið :) 

 

© 2023 by PERSONAL TRAINER. Proudly created with Wix.com

bottom of page